Úff, mig vantar allveg virkilega hjálp, allar skoðanir og ráð velkomin.

Málið er sko að fyrir svona c.a. einu og hálfu ári fór ég og vinur minn (sem að ég er búin að þekkja síðan alltaf því að fjölskyldurnar okkar eru vinir) fórum að dúlla okkur saman, við vorum búin að vera að horfa á myndir og kúra og eikkað í sona c.a. 3 mánuði þegar að hann fór alltaf að vera að koma með svona nasty hluti á msn eins og t.d. “ í hvernig nærbuxum ertu? ” og svona hluti

Hann talaði alldrei við mig í skólanum af því að vinum hans hafa aldrei líkað við mig og hann vildi ekki að sér yrði strítt. Þannig að allt sem aðvið gerðum fór fram annað hvort heima hjá mér eða heima hjá honum.

Svo þegar að hann var búin að vera með nærbuxna dótið í nokkra ´mánuði fór hann að ganga lengra og lengra og var hættur að nenna að hitta mig nema að fá eikkað í staðinn sem að ég vildi ekki gera. 'i fyrra vor fékk ég allveg nóg af honum og blokkaði hann allveg yfir sumarið ( hann fattaði samt ekki að hann væri blokkaður :S )

Svo í haust fór ég á tónleika og kyssti einn gaur og einhvern veginn frétti hann af því ( ég unblokkaði hann reyndar aftur nokkrum dögum áður en að ég fór á tónleikana) og varð allveg brjálaður. Við rifumst allveg svakalega og hann fór í fýlu þangað til núna fyrir jól.

Núna er ég nýbyrjuð að tala við hann aftur og er búin að hitta hann einu sinni og hann segist hafa breyst og þroskast og hann er reyndar búin að sýna það á ákveðinn veg en hann talar ennþá ekki við mig í skólanum

Þannig að eg er að spá, hvað á ég að gera?? á ég að halda áfram að hitta hann og eiga aftur á hættu að verða særð eða á ég bara að kutta á hann (sem er frekar erfitt þar sem að fjölskyldurnar eru mjög nánar)

P.S. hann er líka náskyldur bestu vinkonu minni :S


svo að hvað á ég að gera ?? :S:S
Love is a game that two can play and both win by loosing their heart.. <3