Þetta ætti nú miklu meira heima á sorpinu þar sem að þetta samband var nú eiginlega bara rusl í hans augum. En ég ætla að cut down the bitterness hérna og ég vil reyndar fá smá skoðanir um hvað ég ætti að gera.

Ég kynntist strák úti í sumar og eiginlega var hann jú sá fyrsti sem að ég kyssti og allt svona. Ok svo bara summer is over og við getum ekki annað gert en að tala við hvort annað á msn. Við vorum í þessu sambandi í 4 mánuði þar til að ég var farin að efast um hvort að þetta virkilega meinti eitthvað fyrir hann. Þá sagði hann mér upp. Það var bara byrjunin, hann sagði mér að ástæðan væri sú að hann vildi ekki NEIN sambönd. Ég treysti honum alveg 100% og hann vissi það.

2 vikur og 6 dagar eftir að þetta gerist þá fæ ég að vita það frá vinkonu minni að hún vissi hvað hefði gerst og henni þætti það leitt. Svo kom frá henni: “Ég og vinkonur mínar erum að reyna að finna út hver þessi stelpa er.” Og ég bara ha? Hætti hann með mér út af stelpu? Vinkona mín hafði þá haldið að ég vissi þetta allt saman og var rosalega miður sín að hafa kjaftað frá en ég þakkaði henni fyrir hreinskilnina.

Ég talaði seinna við minn fyrrverandi og fékk það út úr honum að hann væri að dunda sér með annarri gellu. Svo núna í dag talaði ég við hann og lét hann heyra það. =( Ég er ekki akkúrat “bitchy” manneskja en ég var svo særð að heyra það að hann hafi logið að mér. Mér er svo sem sama um hann og þessa gellu en ég hélt að ég gæti treyst honum. Það er það sem særir mig. Hann reyndi að koma með afsakanir og reyndi líka að klína þessu upp á mig. Vinir mínir sögðu mér að hætta að tala við hann, vera vond við hann, block-a og delete-a honum en ég get ekkert að þessu. Ég er ekki þannig manneskja. Ég er samt svo hrædd um að halda áfram að særa mig eins og ég er að gera núna. Nýbúin að senda honum afmælisgjöf sem að virkilega meinti eitthvað og hann segir mér það að ég hafi bara verið leikur í hans augum þarna úti þegar að ég hitti hann en svo þegar að hann talaði við mig á msn þá varð hann hrifinn af mér og er ennþá. Undanfarna daga hefur hann líka verið að gefa það í skyn að hann sé hrifinn af mér. Hvað í ósköpunum er hann að hugsa? Og hvað á ég að gera í þessu? Bara tala við hann eins og ekkert hafi í skorist?

En bara svo að ekkert fari á milli mála þá er ég ekki reið við hann út af því að hann sé komin með nýja. Ég skil það vel að hann vilji halda áfram en ég get ekki sætt mig við það að hann skildi virkilega halda þessu frá mér. Sérstaklega þegar að hann vissi að ég treysti honum innilega.