Hvað á ég að vita ?
Þú segir mér aldrei neitt
Þetta er erfitt fyrir mig
Mig þykir þetta leitt

Þetta fer bara illa með mig
Ég er orðin þreytt
Á að reyna að eltast við þig
Og reyna að sýna þér hvað ég elska þig heitt

Ég er búin að gefa þessu sénsa
Loksins búin að átta mig á þessu
Ég veit að þetta er betra fyrir mig
Núna þegar allt hjá mér er í eintómri klessu

Alltaf of upptekinn fyrir mig
Alltaf eitthvað með vinum þínum
Ég reyndi og reyndi, fórnaði öllu fyrir þig
Öllum frítímanum mínum

Auðvitað þykir mér enn vænt um þig
Þú mátt ekki halda eitthvað annað
Ég veit þú myndir gera allt fyrir mig
Það hefur svo sannarlega sannað

Vinskap líst mér betur á
Bestu vinir meiri segja
Ég skal halda áfram að hringja ef ég má ?
Kominn tími til að þegja

Ég veit þig langar að halda áfram
En þú verður líka að hugsa um mig
Mundu að þú gerðir ekkert rangt
Og mundu ég mun alltaf þykja vænt um þig

——————————————-

Fer stundum í svona gír sem ég verð að skrifa tilfinningar mínar niður á blað þegar mér líður illa eða þegar ég er eitthvað áttavilt.
Einhver af ykkur skilur mig öruglega, mæli allavega með þessu, þetta losar mikið um.

Rosastelpa