Ætla skrifa nokkur orð um og til ástarinnar minnar :) Afþví ég veit að hann skoðar ;)


Það var eitthvað við fyrsta kvöldið sem við hittumst þetta var eins og við værum fædd til að þekkjast, náðum svo vel saman og þú vildir að við hefðum þekkst mikið lengur og kynnst mikið fyrr, ég var á sama máli.

Eftir nokkra daga fór mér að lýtast alltaf betur og betur á þig, og á endanum enduðum við saman og það eru að verða komnir 3 mánuðir síðan, mér finnst ég hafa þekkt þig alla ævi, þú geriðir svo stóran hlut fyrir mig bara með því að tala við mig, ég þarfnaðist þess svo mikið þar sem ég var farin að efast um allt og ekkert.

Þú ert stór hluti af lífi mínu núna, ég kikna alveg við að horfa á þig, tala við þig, snerta þig og hvað þá að fá að knúsa þig og kyssa, hversu gott getur það verið.

Það sem ég er að reyna að segja þér er að ég elska þig svo heitt að ég gæti grátið í hvert skipti er ég sé þig, þú hefur gefið mér svo góða tíma, þú ert það eina sem ég sé, ég gæti ekki verið meiri hamingjusöm en ég er núna og þú veist það ástin mín.

Jólin voru svo æðisleg, það var alveg æðislegt að fá að vera hjá þér yfir jólin og Áramótin, óska þér gleðilegra jóla óska þér gleðilegs nýs árs, hefði ekki getað verið betri Jól.

Í hvert sinn sem þú ferð að vinna og ég vakna ein í rúminu vantar svo stóran hlut, ég elska sunnudaga og þú veist afhverju, þá fæ ég að vakna við hlið þér og vil ekki sleppa þér, það er svo æðislegt þegar þú kemur í hádegismat fá að vera með þér og svo er erfitt að sleppa þér þegar maturinn er búinn.

Hvað gæti verið meira en æðislegt að halda í höndina á þér á hverjukvöldi þegar við förum að sofa, gæti ekki verið betra að sofna við hliðinná þér.

Fólk er ávallt að hneygslast á aldursmuninum á okkur, en mér er svo slétt sama þar sem þetta er mín ást mín sál og þú ert mér allt.

Ég hef aldrei verið eins ástfangin og hamingjusöm og ég er í dag, og ég veit að þetta er varla tekið gilt innan um aðra en hver þekkir mig eins og þú?

Vildi bara að þú myndir vita það að ég elska þig meira en allt og hve stór hluti þú ert af lífi mínu.

Elska þig ástin mín ;*

Takk fyrir mig.