Það besta við það að vera á Huga að það veit einginn hver maður er

en jæja ég vil vita hvort ég ætti að senda stelpu sem ég hef verið hrifinn af í 1 ár síðan ég sá hana fyrst bréf sem ég hef verið að skrifa í hálfan mánuð og hvort ég ætti að sleppa einhverju eða bæta við öðru

ég er bara svo confused að það er ekki venjulegt….

ahhhhh why is life so hard

hérna er bréfið og ég bið alla að sýna hellstu nærgætni

Kæra XXXXXX


Mér datt í hug að senda þér þetta bréf vegna þess að ég hef ekki það mikið sjálfstraust að ég gæti gengið upp að þér í skólanum og sagt þér þetta og eins og þú veist þá er íslenskan mjög óþjált mál og því er erfitt að koma þessum hugsunum í orð.


Ástæðurnar fyrir þessu bréfi eru þessar. Hvert sinn sem ég sé þig þá byrjar hjartað mitt að slá hraðar og mér sortnar fyrir augun. mér hefur liðið svona frá því að ég sá þig fyrst. Mér hefur aldrei liðið svona áður í kringum nokkra manneskju..
Alltaf þegar ég sé þig fara tilfinningar mínar á flug og ég kem inn í nýjan heim. stundum get ég ekki sofið neitt af einhverri löngun til að tala við þig og hlusta á þig.
Ég er kanski svona venjulegur náungi sem þorir ekki að horfast í augu við ótta sinn en það er bara að þetta er allt svo nýtt fyrir mér. Það má nefna það að ég hef alltaf ætlað að setjast við hliðina á þér í Ensku en það er bara eins og ég frjósi þegar ég tek áttina að sætinu og einnig þegar þú horfir í áttina til mín þá lít ég skelfingu lostinn í aðra átt svo þú sjáir ekki að ég er að horfa á þig af hræðslu við að þú haldir að ég sé eitthvað að stara á þig. Vona að þú miskiljir ekki það sem ég er að segja. Ég er bara svo feiminn að það er algjört met það sést kanski ekki á mér en það er bara vegna þesss að ég fel mig á bak við allskyns fíflalæti og tilraunir við að vera einhver sem ég er ekki.
Ég er kanski eitthvað (brjálaður) að vera að senda þér svona bréf en það er held ég eina leiðin til að brjóta ísinn. ég veit að við þekkjumst ekki neitt en mig langar að breyta því.
Þetta er örugglega svolítið stór skammtur fyrir þig að taka inn en ég vona að þú sjáir fyrir þér hvernig mér líður
Málið er bara að mér finnst eins og það sé eitthvað rafmagn milli okkar.
Ég vona að ég hafi ekki gengið of langt

Kær kveðja K