Sæl/ir

Ég vildi endilega senda inn eitthvað frá mér því ég hef mjög gaman af rómantík og þess háttar. Og þessvegna langaði mér að miðla svolitlu til ykkar.

1. Þið sem voruð að fá bílpróf skuluð gera ykkur grein fyrir því að það er eitt það vitlausasta sem þú getur gert að keyra hratt með stelpu. Ef hún er óörugg með þér í bíl þá á hún erfitt með að geta treyst þér þegar á reynir.
2. Þegar þið reynið við stelpu er það vitlausasta sem þið gerið að nota SMS eða talhólf. Það er eitthvað sem allir eru búnir að reyna en virkar ekki. Skrifið frekar bréf (ekki Email), reynið að gera allt til þess að gera þetta sem persónulegast því að jú ástin er persónuleg.
3. Ekki reyna við stelpu með því að “reyna” að vera fyndinn, stelpurnar sækjast jú stundum eftir því en ef þú gerir þetta alltaf með þeim hætti fer hún að hugsa. "ohhh hann er svo skemmtilegur, ég get ekki byrjað með honum eða henni því að þá myndi kannski vinskapurinn slitna. Þetta er mikið Turn Off. síðan getur einnig verið að hún haldi þá að hún eða hann geti aldrei talað við þig í alvöru því að þú þarft alltaf að snúa öllu upp í grín. Síðan eiga stelpur til með það að fá fljótt leið á þannig gæjum.
4. EKKI TAKA VINKONUR ÞÍNAR MEÐ ÞEGAR ÞÚ ÆTLAR AÐ HITTA STRÁKINN ÞAEGAR ÞIÐ ERUÐ NÝ BYRJUÐ SAMAN!! Við strákarnir HÖTUM það!!
5. Að lokum mæli ég með því að fara með stelpuna kannski í Blá Lónið í staðin fyrir bíó. Það er eitthvað svona öðruvísi. Stelpur vilja tala og finnst það gaman. Hver fer í bíó til þess að tala?

Vonandi getið þið notað þetta eitthvað, en ég er ekki að segja að það eigi að gera þetta svona. Þetta eru bara hugmyndir og eigin reynsla.

TAKK TAKK

×siggi×