Ég er í smá vanda. Þetta er nú kannski svona mál sem maður talar um við Dr. Love en ég ætla samt að láta á það reyna að senda þetta hérna inn.
Þannig er mál með vexti að ég hef verið hrifinn af einni af mínum bestu vinkonum í mjög langan tíma núna og er ekki viss um það hvað ég á að gera!
Ég er alltaf að reyna að grafast eftir því hvaða hug hún ber til mín en fæ alltaf misjöfn viðbrögð. Eins og alltaf er ég hræddur um að ef ég tala hreint út við hana muni vináttan slitna en það vil ég ekki því hún er svo yndisleg stelpa, hún hefur svipaðan húmor og ég, hún er falleg, skemmtileg og alveg rosalega gáfuð.
Ég er ekki vanur því að tala við stelpur og þessvegna hef ég ekki þorað að tala við hana ennþá.
Plís getur eitthver hjálpað mér.
Einn í vanda