Já sæl veri þið, ég kom hér til þess að skrifa um mína fyrstu og einu ást.

Ég spila leik er heitir World of Warcraft og hef ég spilað hann í rétt meira en ár núna.
Ég á marga vini frá þeim leik og eru margir þeira erlendir.
Ég fékk nýjann meðlim í “guild” sem ég er í og kom hún einu sinni á spjall forrit sem guildið notar sem kallast Teamspeak.
Ég heyrði rödd hennar mjög stutt því ég þurfti að skjótast í vinnu.

Ég skráði mig inn næsta dag og sá hana tengda og bað hana um að koma á TS því mig langaði að kynnast henni.

Við töluðum um allt sem mögulega var hægt að tala um. Endaði á því að ég fékk MSN hjá henni og talaði við hana þar.
Næsta dag skráði ég mig á msn og sá að hún var tengd aftur svo við byrjuðum að tala á MSN.
Ég tók eftir að hún var með Webcam svo ég spurði hvort ég gæti séð hana.
Hún svaraði því játandi og ég helt ég væri í himnaríki.
Þrátt fyrir léleg gæði á vélinni sá ég engil. Gullið hár og blá augu.
Ég varð orðlaus, hún var með yndislega rödd, yndislegan líkama og var gullfalleg.
Nokkrar vikur liðu og við töluðumst saman á hverjum degi, ég keypti mér Webcam sjálfur og töluðumst við oft í gegnum MSN með þær í gangi.

Ég sagði henni oft hve falleg hún væri og hvernig röddinn hennar slakaði mig og lét mér líða yndislega vel.
Hún sagði að röddin mín væri mjög róandi og í hennar eigi orðum “vildi láta hana bráðna í stólnum sínum”(Hljómaði betur í enskunni).

Eftir smá tíma fór hún að tala voðalega mikið um einn dreng sem hún var hryllilega hrifinn.
Mér fannst mér yndislegt að hún hafði fundið einhvern til þess að vera með.
Hún sentir mér 2-3 myndir af honum og sá ég að hann var bara frekar vel útlítandi.
Næstu daga fannst mér ég vera voðalega pirraður og sár þegar hún talaði um hann, vissi nú varla afhverju en ég lét það ekkert í ljós.

Það endaði með því að ég varð bara mjög sáttur með samtöl okkar og skemmti mér konunglega í hvert sinn.
Flýtti mér heim frá vinnu til að geta talað við hana.

Ég sagði henni að þegar ég er 18 eða fyrr kem ég að heimsækja hana.

Enn þann dag í dag tölum við saman um allt sem gerist í lífum okkar og höfum við talað saman á hverjum degi frá því við “hittumst”.


Þetta er mín fyrsta grein á Huga svo ég skil vel ef það eru mótmæli, líka það að ég kynntist henni í gegnum internetið og kannski ekki litið vel á það.
Hún er 18 og á heima í Bandaríkjunum.

Öll comment velkomin :)

Mistress er samt sykurpúðinn minn :D