Jæja. Er orðin svo þreitt á þessum stefnumóta markaði og öllum þessum rugluðu og klikkuðu gaurum that roam the world. Þannig ég hef hækkað skalan svo heimskulega hátt að vilji einhver deita mig, þá þarf hann næstum að jaðra við að vera fullkomin.

En hvað er ég að tala um? Hann þarf að vera hávaxin, við erum að tala um hærri en 185-190 cm allavega. Hann þarf að vera fitt, ekki horaður. en ekki einhvað vöðvafjall. Hár-og augnlitur skiptir ekki miklu máli. En hann þarf að vera sérstakur. Hann þarf að hafa meiri útgeyslun en sólin og þarf að vera fyndnari en ég. Hann þarf að hafa frábæran og opnan persónuleika, sem já hefur svipaða úrgeyslun og sólin. Hann þarf að vera spontanius og ævintýragjarn. En þarf að vita hvenær hann á að vera alvarlegur og hvenær hann á að halda aftur af sér. Hann má ekki vera feimin og þarf að geta tekið frumkvæði. Hann þarf að vera mjög trúr, traustur og hreinskilinn. Hann þarf næstum að fyrirlíta lygar. Hann þarf að vera gagnkynheigður. Hann þarf að vera elskulegur og umhyggjusamur, en samt ekki voðalega væmin. Hann má ekki reykja, en drekka í hófi. Hann þarf að hafa gott og hresst sjálfsálit. Hann þarf að hugsa vel um sjálfan sig og þykja vænt um sjálfan sig og annað fólk í kringum hann, en þarf líka að kunna að segja nei. Hann þarf að hugsa útí hvernig hann klæðir sig. Hann þarf að hafa áhuga á ævintýrabókum og þarf að hafa smá nördisma í sér. Hann þarf að geta haft gaman af Sci-fi myndum. Að hafa spilað spunaspil er kostur. Hann þarf að geta höndlað minn síbreytilega persónuleika og sveflukenda skapið mitt, og hálf klikkuðu fjölskildina mína. Hann þarf að hafa sterkan persónuleika til að taka á móti reiðisköstunum sem ég get fengið og ekki gefa eftir alltaf (en samt stundum)
Fjölskildan hans þarf að vera góð og ekki geðveik (engar sækó tengdamömmur takk) og systkinin þurfa að vera góð og ekki hafa þörfina fyrir að sundra samböndum systkynna sinna bara uppá djókið. Hann má helst ekki eiga hund, en gæludýr eru plús. Kettir eða eðlur eru kúl. Jafnvel skjaldbökur. Vinir hans verða að vera opnir og skemmtilegir. Það væri betra ef hann væri í vinnu frekar en skóla, og hann verður að hafa gaman af þvi sem hann gerir. Hann verður að hafa metnað fyrir framtíð sinni. Og það er kostur að hann annað hvort eigi eða hafi aðgang að bíl.

Kröfur mínar eru svo heimskulega háar. Að ég held ég verði einhleyp í einhvern tíma. Því jafnvel ef þessi fullkomni gaur kæmi, þá þyrfti hann að sannfæra mig um að hann sé í alvörunni æði, en ekki bara einhver geðsjúklingur.


en þú sem hefur þessa lýsingu… ef þú ert til .. /msg me!!
dwagons shalt rule the woðld