Þið sem stundið /kynlíf vitið ef til vil að ég fór erlendis hérna um daginn og var í burtu í þrjár vikur.
Á þessari ferð minni kynntist ég manni, hann er lærður, ákveðinn (enda dom), skemmtilegur, ég og hann náðum rosalega vel saman, það var eiginlega bara undarlegt hve vel við náðum saman sem vinir.

Ég á fremur erfitt með að treysta fólki eða þá leyfa mér að líka vel við fólk en ég treysti honum fullkomnlega frá því að við hittumst fyrst.
Áður en ég fór út hafði ég spjallað við hann á Collarme.com og svo á MSN ásamt því að vera með símann hans.
Við hittumst á London Munch þar sem ég var kynnt fyrir vinum hans innan senunar sem þarna voru ásamt L. sem er búin að vera aðal lífsfélagi hans seinustu 11 árin, en svona til að útskýra þetta betur þá er hann í opnu sambandi, hann elskaði bara hana eina í 11 ár…
Við eyddum góðum tíma saman á KinkFest en hann var mikið að passa uppá mig þarna… ég var gífurlega óörugg og feimin en mér leið vel því ég treysti honum og L. þau eru rosalega yndisleg.
Þegar íslensku vinir mínir fóru aftur heim á klakann þá fór ég til hans og L. í viku eða þar til ég fór til Austurríkis, átti góðan tíma með þeim, gat talað við hann um allt sem hafði gerst í lífi mínu og hví ég er ekki beint fyrir það að treysta fólki, hann skildi það og shareaði ýmsu með mér.
Þegar ég var í Austurríki saknaði ég þeirra meira en lítið, saknaði þess að fá knús frá þeim og kossa frá honum, kúrinu yfir bíómyndum og bara almennt að vera með þeim.
Þegar ég kom til baka til Englands náði hann í mig á lestarstöðina, ég var svo fegin að sjá hann, það var svo gott að fá knús og þegar við komum heim til þeirra L. hélt ég að ég myndi hreinlega fara að gráta, var búin að vera eftir Austurríki og það var svo gott að koma þar sem mér finnst ég vera örugg…
Seinasta kvöldið mitt þarna eyddum víð þrjú tímanum í spjall og áætlanir fyrir næstu ferð mína þangað, þeas næstu ferð mína til ÞEIRRA.

Núna í fyrradag þegar ég var að tala við hann á MSN þá ákvað hann að segja mér svolítið sem hann hafði haldið aftur af sér að segja þegar ég kom frá Austurríki til þeirra, en gat ekki haldið aftur af sér lengur.
Hann sagði mér það að hann elskaði mig, þrátt fyrir aldursmun, hvað ég get verið erfið og allt þá elskaði hann mig… L. veit af því og henni finnst það frábært að ÉG skuli vera hin konan í lífi hans sem hann elskar…
Það sem eftir var þessa dags var ég hálfdofin, ég vissi ekki hvaðan á mig stóð veðrið, ég elska hann líka bara á mína vegu, ég er verulega hrifin af L., ég hef kynferðislegan áhuga á þeim báðum og elska það að þau eru bæði dom.
Það að hann er í opnu sambandi við L. er ekkert að rugla mig, ég veit það vel, þau eiga bæði kærustur fyrir utan hvort annað… það sem gerir mig puzzled er það að hann ELSKAR mig… hann varð ástfanginn af mér, ég er eina konan fyrir utan L. sem hann hefur orðið ástfanginn af í 11 ár!

Ég ætlast ekki til þess að þið skiljið þetta en ég þurfti bara að tjá mig…

Ég elska hann… og hann elskar mig… L. elskar okkur bæði og ég dýrka hana… sætur þríhyrningur?

Kv. Taran *í hugsunum*