Þú nálgast kynlífið eins og tilveru þína á hvatvísan og kappsfullan hátt. Þú birtist hér ástríðufull, hégómagjörn, erótísk, rómantísk og oft á tíðum flókin kynvera! - Stjörnumerkin og KYNLÍFIÐ!

Hrútur
Þú nálgast kynlífið eins og tilveru þína á hvatvísan og kappsfullan hátt. Þú birtist hér ástríðufull, hégómagjörn, erótísk, rómantísk og oft á tíðum flókin kynvera miðað við stjörnu hrútsins.

Bogmaður
Viðurkenndu tilfinningar þínar en ekki bæla þær niður. Haltu þig við eigin tilfinningar og skynjun. Leitaðu að sameiginlegum hvötum, markmiðum og áhugamálum sem bæta samskiptin.

Steingeit
Þú hefur eflaust nú þegar sent frá þér langanir þínar og mátt vissulega treysta almættinu fyrir framvindu mála hvað varðar drauma þína.

Sporðdreki
Tjáðu þig og temdu þér þolinmæði. Þú birtist hér tælandi með heitar ástríður en oft á tíðum kalda rökhugsun.

Vog
Þú hefur vissulega gaman af því að láta hvísla að þér ástarorðum og æsist allur/öll við létta snertingu og ert að sama skapi fær um að skynja og upplifa það sem heldur lífsvef þínum saman.

Meyja
Þú hefur mikinn áhuga á kynferðislegum viðbrögðum þínum því þú uppgötvar sífellt möguleika þína til að upplifa. Þú þarft hinsvegar að læra að kynlíf er meira en samfarir.

Naut
Ef þú ert ekki ástfangin(n) er vissulega erfitt fyrir þig að stunda gott kynlíf því þú ert oftar en ekki bundin(n) eigin tilfinningum. Þegar öll skynfæri þín eru örvuð í einu ert þú ánægð(ur) og þegar þú æsist væntir þú fullnægingar.

Ljón
Þú æsist hægt og þarft stöðuga örvun. Hægfara kynlíf er þér sannarlega að skapi en til að þú verðir fær um að njóta stundarinnar í faðmi elskhuga þíns þarf hugur þinn, andi og líkami að vera til staðar.

Krabbi
Erting með snertingu er nauðsynleg til að koma þér til en á sama tíma veist þú nákvæmlega hvað þú vilt upplifa. Þú ert fær um að deila þekkingu og reynslu með öðrum því þú veist innra með þér að orkuna á ekki að nota til að stjórna heldur til að njóta.

Tvíburar
Það er mannlegt að einblína á það sem hefur mistekist en þú ert minnt/ur hér á að þú hefur lag á að upplifa það sem þig ávallt hefur dreymt um í sambandi. Útlit þitt og gáfur eru uppsprettur sem auðvelda þér að ná því sem þú þráir þegar tilhugalíf þitt er annars vegar.

Fiskar
Þú birtist hér áköf/ákafur við að skilja eðli og merkingu kynlífs og finnur það eflaust innra með þér að hjarta þitt er rafall sköpunargleðinnar. Hér geislar af þér sjálfsöryggi og reisn á sama tíma og fegurðarskyn þitt er nógu gott til að þú megir treysta því.

Vatnsberi
Þú hefur án efa djúpstæða þörf fyrir ást og væntumþykju og þú unir þér eingöngu vel við mikla nálægð. Þú þarft að læra að biðja stöðugt um ástaratlot og ekki síður að njóta stundarinnar að fullu.


Meira um stjörnumerki í rúminu

awww sweet =)

Vatnsberinn (28. Jan - 18. Feb)

Vatnsberinn þarf fyrst og fremst þolinmóðan, skilingsríkan og hlýjan bólfélaga. Rúmið þarf að uppfylla væntingar hans svo hann fái notið sín. - Hræðist náin kynni. - Feiminn en auðmjúkur - Hann er yfirleitt feiminn - Svolítið tilbaka í persónulegum samskiptum - Fæstir komast í gegnum skelina og kynnast honum náið - Hógværð hans er heillandi í rúminu - Á erfitt með að vera opinnn og óheftur í rúminu - Laðar að sér fólk sem hann þráir, slík er hugarorka vatnsberans - Vill deila miklum tíma með elskhuga sínum í rúminu - Getur verið allt með elskhuga sínum; jafningi, ástmaður, kennari, einlægur vinur og bólfélagi .

Fiskur(19.feb - 20.mars)

Fiskurinn er stórkostlegur elskhugi svo lengi sem honum finnst hann vera verndaður tilfinningalega og elskaður alla leið. Vandræðin hljótast eingöngu ef fiskurinn elskar sjálfan sig ekki nóg. - Dularfullur, fallegur, rómantískur í rúminu - Oft flæktur í eigin tilfinningar og nær því ekki að einbeita sér nóg - Á það til að forðast velgengni og eyðir lifi sínu í dagdrauma. - Gæddur mjúkum, rafmögnuðum ákafa eins og nýtur þess að kúra - Nýtur þess að láta drottna yfir sér (í rúminu) en stefnir um leið að því að hafa stjórn - Vill að kynlífið sé skemmtilegt, margslungið og tilbreytingaríkt - Kynlífið er könnunarferð í huga fisksins - Hann leitar að sameiningu ástar og kynlífs með elskhuga sínum - Leitar eftir samböndum sem fylla hann von og ást - Hann heldur tryggð við konuna sem hann fellur fyrir

Hrútur(21.mars - 19.apríl)

Hrúturinn nálgast kynlífið eins og allt annað í lífinu: hvatvís og kappsfullur. Hann er opinn fyrir öllu en elskhugi hans ætti ekki að spyrja hann um morgundaginn því hann er ekki fyrir kynferðislega einokun. - Sængurver úr silki eða satín eflir hvatir hrútsins - Rómantískur, ástríðufullur, kynferðislegur og lostafullur - Kröfuharður og fyrir honum er rúmið orustuvöllur nánast - Elskhugi hrútsins þarf að þola sálrænt ástand og geta sætt sig við þá orku sem fylgir reiði og ákveðni og ekki síður orku ástarinnar - Líkar vel að skreyta rúmið með óteljandi púðum - Næmur, heiðarlegur og hefur óbeit á uppgerð í rúminu - Þolir ekki að láta sér leiðast - Hann er hvetjandi og drífandi. - Hann tilheyrir eldmerki: trygglyndur og örlátur á atlot og strokur - Hann þarfnast félaga sem er jafn ákveðinn og hann í rúminu

Krabbi(22.júní - 22.júlí)

Krabbinn er feiminn en hefur ríka kynhvöt.Kynlíf er krabbanum kjarni lífsins og tal hans, lykt, matargerð og bros geisla af kynþokka - Hart rúm stuðar krabbann nánast - Vill sökkva með elskhuga sínum inn í nóttina áhyggjulaus og frjáls - Næmur á fólk og umhverfið og kýs þess vegna snyrtilegt mjúkt rúm - Næmi og innsæi hans eru slík að hann er mjög viðkvæmur fyrir rúminu - Allra manna þolinmóðastur í rúminu - Ástarvef sinn vefur krabbinn fínlega og dramatískt í rúminu - Púðar skipta engu máli heldur þarf rúmið að vera hreint og fallega búið - Flekandi og föðurlegur í samskiptum við elskhuga sína - Leitast við að prófa sig áfram í rúminu

Ljón(23.júlí - 22.ágúst)

Stærsta vandamál ljónsins er óraunhæfar væntingar í rúminu. Það vill hart stórt rúm og kýs helst að sofa,lesa,elskast og borða í rúminu allan sólahringinn. - Geislar af sjálfsöryggi og reisn í rúminu (sjálfsöryggið ómótstæðilegt). - Getur verið ákaflega kröfuhart við elskhuga sinn og jafn örlátt - Svo fremi sem því finnst það vera elskað eða eftirsótt þá er það nokkuð öruggt í rúminu - Þegar það er ástfangið reynir það í sífellu að sigrast á tregðu sinni til að leggja eitthvað á sig fyrir aðra - Kýs tvær sængur því það gefur ekkert eftir í svefni og vill helst hafa sængina milli læranna - Ljónið þarf ástvin sem skilur eigin væntingar varðandi athafnir í rúminu svo hann geti aðstoða það við að verða meðvitað um sínar - Elskhugi ljónsins þarf að búa yfir óbugandi þolinmæði í rúminu - Auðmýkt ekki til í ljóninu - Með skjalli er hægt að láta það gera hvað sem er í rúminu

Naut (20.apríl - 20.maí)

Nautið þarf þægilegt rúm og elskhuga sem endurspeglar styrk þess og tilfinningalegan stöðugleika í rúminu. - Ímyndunarafl er óþarft ef nautið er ánægt - Mjög rómantískt og viðkvæmt - Blítt, fálátt og feimið í rúminu - Þægindi og ánægja skipta nautið miklu máli og þá eru þægilegir koddar mikilvægir - Staðfast og heimakært og kýs því þægilegt rúm sem kallar á það í hvert sinn sem það kemur heim eftir erfiðan dag - Er mjög gefandi í samskiptum við elskhuga sinn í rúminu - Það er opið til líkama, sálar og anda - Þegar því líður vel í rúminu gefur sig allt

Tvíburar (21.maí - 21.júní)

Skilmálar í rúminu er eitthvað sem tvíburinn hreinlega þolir ekki. Hann er hamingjusamastur þegar hann elskar og nær að hvílast vel. - Skemmtilegur og örvandi í rúminu - Honum verður aldrei orðavant þegar elskhugi hans nennir að kjafta alla nóttina - Mjög heillandi elskhugi og tillitssamur svo lengi sem hans helmingur(í rúminu) stendur óáreittur - Hann hefur mikið skopskyn og hnittni hans og töfrar eru á við forleik í rúminu - Þráir að vera elskaður af ákafa og veltast um rúmið ef plássið leyfir - Tvíburanum er vel við börn og þarf stórt rúm svo öll fjölskyldan geti sofið þar

Meyja(23.ágúst - 22.sept)

Meyjan verður að fá að sofa út þegar hún er þreytt til að geta blómstrað í rúminu. Kröfuharkan verður nánast engin þegar hún sefur í góðu rúmi. - Hreinleg og ástríðufull - Rómantískur og gefandi þegar ástarleikurinn hefst - Það líkist töfrabrögðum svo kynþokkafull er meyjan í svefni jafnt sem vöku - Meyjan álítur snertingu eðlilegan þátt í rúminu - Hún gerir mjög miklar kröfur og leitar alla tíð að fullkomnun í rúminu - Aðeins þrá meyju eftir ástarævintýri jafnast á við mikla forvitni hennar - Hann er innilega forvitin í rúminu - Þarf elskhuga sem vill eiga auðugt og spennandi kynlíf - Þarf elskhuga sem er frjáls til líkama og sálar - Þarf elskhuga sem er örugg með kynlífstækni sína í rúminu

Vog(23.sept - 23.okt)

Elskhugi vogar verður að vera þolinmóður og skiliningsríkur og viðurkenna þörf hennar fyrir aðdáun og blíðu í rúminu. - Þegar vogin hefur fundið ástina er ekki aftur snúið - Undanlátssöm í rúminu - Kýs að þóknast öðrum en getur líka verið ákveðin í rúminu - Leitar í sífellu að fyrirmyndar elskhuga í rúminu og þegar hún finnur hann er hún sátt að eilífu - Nákvæm og vandlát í rúminu - Henni er illa við hirðuleysi og vill því að rúmið sé snyrtilegt og vel búið um - Illa við einveru og kýs að hafa einhvern hjá sér öllum stundum upp í rúmi - Kýs ástvinu sem getur nært hana á tilfinninga- og kynferðislega sviðinu í rúminu

Sporðdreki(24.okt - 21.nóv)

Sporðdrekinn nær taki á elskhuga sínum með persónutöfrum sínum,dýpt og þrautseigju í rúminu. - Stjórnsamur en ákaflega trygglyndur og næmari en nokkurn grunar í rúminu - Skynhneigður og ástríðufullur elskhugi - Eigingjarn og jafnvel leynilega sadískur í rúminu ef hann treystir og tengist náið elskhuga sínum - Öfgafullur, allt eða ekkert í rúminu - Afbrýðisamur ef elskhugi gefur sig ekki allan í rúminu - Þegar sporðdrekinn er ástfanginn getur hann verið kynþokkafullur með afbrigðum - Hann er fæddur til kynlífs og valda og það á einnig við í rúminu - Kröfuharður og lostafullur og kýs að hafa umhverfið á sömu nótunum (stórt og mikið rúm og silkirúmföt)

Bogmaður(22.nóv - 21.des)

Bogmaðurinn er fær um að skapa skínandi stemmingu við hvaða aðstæður sem er og býr til rómantíska stund án fyrirhafnar með krafti sínum og hugsjónum. - Einlægur - Hreinn og beinn - Fyrir honum er kynlíf hátíð - Í kynlífsfélaga sínum leitar hann að félaga og samferðaelskhuga - Harðbrjósta, tilfinningalaus (ónærgætinn) - Heiðarlegur og lætur ekki bjóða sér neitt undirferli - Hann hefur mikla þörf fyrir stöðuga örvun í ástarsambandi - Hann lætur oft slag standa með ókunnugum og hefur elt margar myndarlegar manneskjur sem hann er hrifinn af á röndum(gefst ekki upp) - Sterkt fegurðarskyn hans gerir hann að stórkostlegum félaga í ástarleikjum

Steingeit(22.des - 19.jan)

Kynlíf og ást eru mjög mikilvægir þættir í lífi steingeitar en þeir fullnægja aldrei þörf hennar fyrir veraldlega viðurkenningu í rúminu - Kynlífsglatt stjörnumerki!! - Steingeitin er raunsæ og rómantísk í rúminu - Kýs hæfileikaríkan elskhuga með sterkt ímyndunarafl - Stekkur aldrei inn í ný sambönd án langs undirbúnings - Þegar steingeitin elskar loksins, elskar hún ákaft og af öllu hjarta - Auðsærð í rúminu - Er sjálfri sér næg í rúminu en leitar samt verndar sem hún finnur í góðu sambandi þar sem jafnvægi ríkir - Þarf ást en óttast um leið sársaukann sem hún kann að valda.. - Kynþokki hennar vex með aldrinum og sömuleiðis leikirnir sem fram fara í rúminu! - Gott úthald í rúminu.


Sumir trúa ekki alveg á þetta en sumir gera það vona þetta opnar hugann hjá einhverjum :)
There's a fungus amungus !