Sárt að hugsa bara um hann.. Það er einn strákur í mínu lífi sem ég er ótrúlega skotin í. Hann er stór, klár, sætur, flottur og sá besti í rúminu sem ég hef prufað. Honum finnst ég líka sæt og skemmtileg og fyndin og sú besta í rúminu sem hann hefur prufað. Við erum bæði hrifin af hvort öðru og okkur líður svo vel saman. Við förum á fyllerí saman, við tölum saman, við horfum á friends saman, við stríðum hvort öðru og höngum og gerum ekkert saman. Við erum bæði búin að prufa slæm sambönd og erum núna að dúlla okkur með öðrum en hvort öðru svo enginn fatti neitt en mér líður ekki vel með neinum öðrum og hann veit ekki hvort honum líður verr eða betur með öðrum . Ég er búin að vera mest skotin í honum í mörg ár þó ég hafi verið í tvem löngum samböndum þá gengu þau aldrei því ég var aldrei nógu hrifin af þeim því ég var hrifin af hinum stráknum. Hann hefur líka verið hrifin af mér í nokkur ár en aldrei þorað að segja neitt fyrr en eftir eitt fyllerí þá bara kom það. Hlaut að koma að því. Okkur finnst svo erfitt að leyna þessu svo við hættum, eða erum að reyna. Núna er hann byrjaður að dúlla sér með annarri stelpu og það finnst mér sárt. Ég er samt ánægð fyrir hans hönd. Hann fann sér stelpu sem er auðveldara að vera með og nú þarf ég bara að finna mér einhvern strák eða einhverja stelpu. Þetta er það erfiðasta sem ég hef þurft að þola í langan tíma en það er samt þess virði að halda bara áfram að vera vinir því við erum bestustu vinir sem til eru í geyminum til síðustu 7 ára. Ég elska hann út af lífinu. En ég held að ég sé því miður að verða ástfangin…