Reynið nú að hafa smá húmor. Fékk þetta sent í tölvupósti einhverntíman:

Konur fárast yfir mörgu í fari karlmanna og nægir þar að minnast á
að loka klósettsetunni eftir sig, að skilja ekki óhreina sokka eftir á borðstofuborðinu og að kreista ekki tannkremstúpuna miðja. En hvað segja karlmenn? Er eitthvað sem þeir sagt vildu hafa?

Frá körlum til kvenna

Ef þú telur þig vera of feita þá ertu það einfaldlega. Láttu
vera að spyrja okkur.

Lærðu á klósettsetuna; ef hún er uppi, lokaðu henni.

Klipptu ekki á þér hárið. Aldrei.

Stundum erum við ekki að hugsa um ykkur. Lærðu að lifa með því.

Losaðu þig við köttinn.

Sunnudagar = Íþróttir.

Hverju sem þú klæðist ertu fín. Í alvöru.

Konur í wonder bra eða með opið hálsmál gefa upp réttinn á að
kvarta yfir áleitnum augum karlmanna á brjóst þeirra.

Þú getur átt of mörg skópör.

Grátur kvenna jafngildir því að múta.

Láttu óskir þínar heyrast. Óljós skilaboð nægja ekki.

Skráðu afmælisdagana á dagatalið.

Já, það er erfiðara að hitta þegar pissað er standandi. Það
hlýtur eitthvað að fara út fyrir.

Já og Nei eru fullkomlega ásættanleg svör.

Höfuðverkur sem varir í 17 mánuði er vandamál. Leitaðu læknis.

Ekki gera þér það upp. Við viljum frekar vera ófullnægjandi en
blekktir.

Hvað eina sem við sögðum fyrir 6 eða 8 mánuðum er ótækt að
rifja upp í ágreiningsmálum.

Ef þú klæðist ekki eins og fyrirsæta í Victoria´s Secret bæklingi,
láttu þá vera að ætlast til að við hegðum okkur eins og
sápuóperugaurar.

Ef það er hægt að túlka eitthvað sem við höfum sagt á tvo vegu
og annað hvort veldur þér leiða og hugarvíl, meintum við það á
hinn veginn.

Leyfið okkur að líta aðrar girndaraugum. Ef við fáum það ekki,
hvernig eigum við að vita hve falleg þú ert!

Ekki strjúka þér við hann ef þú vilt ekki að hann spretti úr
klaufinni.

Þú átt nóg af fötum.

Ekkert lýsir orðunum betur “Ég elska þig” en kynlíf !


Og aðeins meira svona:

Hvað er köttur?

1. Kettir gera það sem þeir vilja.
2. Þeir hlusta aldrei á þig.
3. Þeir eru óútreiknanlegir.
4. Þegar þú vilt leika, þá vilja þeir vera einir.
5. Þegar þú vilt vera einn, þá langar þá að leika.
6. Þeir ætlast til að þú bregðist við í hvert skipti sem þeir væla.
7. Þeir eru geðvondir.
8. Þeir skilja eftir hár allstaðar.

Niðurstaða: Þeir eru litlar konur í loðnum búk.

Hvað er hundur?

1. Hundar flatmaga alltaf í þægilegasta stólnum í húsinu.
2. Þeir heyra þegar nammipoki er opnaður langt í burtu, en heyra ekki í þér, þó að þú sért í sama herbergi.
3. Þeir geta litið heimskulega og elskulega út á sama tíma.
4. Þeir væla þegar þeir eru óánægðir.
5. Þegar þú vilt leika, þá vilja þeir leika.
6. Þegar þú vilt vera ein, þá vilja þeir leika.
7. Þeir skilja dótið sitt eftir allsstaðar.
8. Þeir gera ógeðslega hluti með munninum og reyna síðan að kyssa þig.
9. Þeir vaða beint í klofið á þér þegar þeir hitta þig.

Niðurstaða: Þeir eru litlir karlmenn í loðnum búk.
Kveðja,