06.06.06

Hæ ástin mín.

Afmælið okkar rann upp á þessum degi og er búnað fara í gegnum huga minn svo margt sem fær mig til að elska þig.
Þú hefur kennt mér að elska á ný og láta sár í hjarta mínu gróa á þann hátt sem ég hélt að væri ekki hægt.
Hlýjan og væntumþykjan…vináttan og traustið sem við höfum byggt upp fær mig til að líta með hamingju í það óséða.
Framtíðin er óskrifuð en svo margt sem heldur okkur saman sem par hefur sýnt þeim sem þekkja okkur að við erum
svo passleg saman að það er stundum scary.
(á góðan hátt)

Eftir ýmis sár sem ég hef hlotið á lífleiðinni hefur þú sýnt mér með glampa í augum þínum að það kemur annar dagur eftir þennan dag.
Að hafa kynnst þér fyrir nær 2 árum síðan fékk hjartað mitt til að taka kipp og litla hjartað þitt tekur enn kipp þegar ég sé þig
á leið til mín.Hlustandi á Bubba tónleikana fannst mer ferð í gegnum svo margar góðar minningar sem halda hjarta mínu hlýju
og brosið kom fram þegar við höfum verið að fiflast saman í göngutúrum úti á góðum dögum.

Ég vissi ekki að hamingjan gæti gefið svona mikið og að rækta ást okkar á hverjum degi sýnir mér hvað er að elska og að vera elskaður.

Stundum þegar ég var yngri og leið mjög illa spurði ég mig hvers vegna ég væri að ganga í gegnum allt sem á undan hefur komið.
Eftir það sem á milli okkar hefur orðið til,myndi ég ganga í gengum það allt aftur á svipstundu…til þess að gera sitið hér og
sýnt þér og þeim sem lesa þetta hvar hjarta mitt liggur.

Hver dagur byrjar með þér og endar með þér.
Að kunna að meta þegar manni er hrint ínni hrúgu af grenitrjám og hlusta svo á hlátur þinn á bakvið mig þegar þú skoppar í burtu glottandi.

Að styðja við þig þegar þú ferð uppá handrið til að passa að þú dettir ekki.

Að halda í hönd þína og horfa á sólarlagið saman.

Að finna þíg slá í öxlina mína þegar brosandi þú kallar “Gulur bíll” og tapa þeim leik þvi það er gaman að sja þig hamingjusama :)

Fortíðin hefur gert mig að þeim sem ég er og þú tekur mér á þann hátt í einu og öllu.

Framtíðin mun styrkja okkur og nútíðin byggja þann grunn sem þegar er kominn eftir þessa yndislegu mánuði.

Með Von í hjarta mér og glampa í sál minni mun ég taka einn dag í einu og vera samferða þér.
Vinátta þín og ást hafa sýnt mér hlið á mér sem ég var búnað grafa langt langt niður eftir að hafa verið særður.
Takk fyrir að vera til.

Með ást og Virðingu.

Góða nótt ástin min og Dreymi þer vel.

Þinn Marcinko.