"Play hard to get" Ég fór aðeins að spá í þessu hugtaki “hard to get”. Ef stelpa er “hard to get”, er þá erfitt að nálgast hana? Ég skil hugtakið, þó ég sjái rosa marga galla í þessari “aðferð”.

Hvernig virkar þessi aðferð? Jú, er það ekki bara þegar stelpa eða strákur þykjast vera voða kúl á því og sýna voða lítinn áhuga á móti, ef áhuginn var fyrir hendi til að byrja með? Bara til þess að fá hina manneskjuna, sem er að reyna, til þess að reyna meira og meira og þar með ganga á eftir manneskjunni.

Ég lendi rosalega mikið í þessum stelpum, enda held ég að allar stelpur á þessum klaka séu farnar að beita þessari aðferð. Þó meira á djamminu heldur en venjulega. Ég trúi því að þessi aðferð hafi ekkert gott í för með sér. Bara misskilning og mistúlkun.

Maður er kannski á skemmtistað og er að dansa og sér sæta stelpu, og langar að kynnast henni betur. Maður fer og dansar við hana. Hvað gerir hún þá? Annað hvort leikur hún sér að manni. Þ.e. dansar við mann og fær mann til að halda að hún hafi áhuga á manni, eða hunsar mann algjörlega. En hvernig veit maður hvort hún sé að beita aðferðinni eða þá að hún hafi bara alls engan áhuga á manni? Þetta er nefnilega smá pæling, sem ég hef verið að spá svolítið í undanfarið.

Ég viðurkenni að ég er frekar slappur player, enda er ég ekki slíkur, þó flestar stelpur haldi að ég sé það. Vissulega, ef ég sé stelpu og líst vel á hana, langar mig að kynnast henni betur. En það er ekki þar með talið að ég myndi vilja sofa hjá henni strax. Bara beint inn á klósett. Þvert á móti. Það eru þó flestar stelpur sem hugsa það að maður sé bara að notfæra sér þær fyrir kynlíf. Þó það séu flestir sem eru að því, þá eru það ekki allir. En hvernig sjá þær það? Þetta er flókið mál. Hvað er “player”. Hvað er að vera “hard to get”?

Ég myndi túlka player sem gaur sem er með margar í takinu, en leikur sér að þeim öllum. Lætur eina halda að hann hafi geðveikan áhuga á henni, en hefur svo bara áhuga á því að ríða henni og kasta henni svo burt. Svo fer hann á næstu. Svona skilgreini ég player. Stelpur geta einnig vera playerar. Ég þoli ekki playera!

Þessi “hard to get” aðferð er hins vegar ekki að virka sem skyldi. Gallinn við hana er sá að þetta fær viðkomandi til þess að halda að manneskjan hafi engan áhuga á manni. Ef ég væri að reyna við stelpu, og hún myndi beita þessari aðferð, myndi ég bara halda að hún hefði engan áhuga á mér, þó hún hefði mikinn áhuga. Svo eru einnig sumir sem halda að stelpur, sem hafa alls engan áhuga, séu bara að beita þessari aðferð, og þeir halda áfram endalaust, og verða þar af leiðandi uppáþrengjandi.

Ég hugsa að lausnin á þessu vandamáli væri sú að ef strákur hefði áhuga á stelpu, myndi hann sýna henni hann. T.d. með því að dansa/tala við hana o.s.frv. Svo ef hún hefði engan áhuga, þá bara að segja honum það hreint út, svo hann sé ekki að gera sér einhverjar óþarfa vonir.

Ég tel að skemmtistaðir séu lottó ástarinnar. Það er aldrei að vita nema þú finnir hana þar, þó það séu minnstar líkur á því. En það er bara staðreynd að stelpur vilja láta ganga á eftir sér, og strákar vilja ganga á eftir stelpum. En er það ekki bara út af því að það hefur alltaf verið svoleiðis? Er ekki kominn tími til að breyta því? Eða hvað?
Gaui