Piparsveinn Mánaðarins! Piparsveinn vikunnar er liður sem hefur ekki sést inni á áhugamálinu síðan að Carrera tók sér þennan titil svo vel eins og allir muna eftir. Það má því segja að Carrera hafi verið piparsveinn síðustu fjögurra mánaða. Núna er hins vegar kominn nýr kandídat, sem mun bera þennan titil næsta mánuðinn, og er mikið í hann spunnið.



—————————————-


Vikkia87 er 18 ára piltur, stór og stæðilegur biti. Hann heitir réttu nafni Viktor og býr í Garðabænum, en ólst þó upp í Reykjavík. Hann segir fjölskylduhagi sína góða en hann býr í tveggja hæða húsi með elskulegri fjölskyldu sinni og finnst lífið vera fínt eins og það er. Það er þó eitthvað sem vantar og er það ástin. Það gengur illa að finna réttu stúlkuna og því sakar ekki að hafa alla anga úti, þar með talið á huga.

Viktor er klár strákur, grunnskólagenginn og er nú á sínu þriðja ári í Verzló. Hann á bíl og er frekar vinsælt að rúnta með honum, enda góður bílstjóri mjög. Hann vinnur svo örlítið með skólanum til að eiga fyrir bensíninu og mat, en drengurinn getur verið svolítið dýr í rekstri í sambandi við það. Uppáhalds skyndibitinn hans er sveitt samloka á AktuTaktu en uppáhalds veitingastaðurinn er T.G.I Fridays á Englandi.

Viktor er vog í stjörnumerkinu sem segir okkur samkvæmt spamadur.is að hann sé einn af þeim sem velji ávallt ljósið, kærleikann og sannleikann. Hann treystir á þá leiðsögn sem hann fær og veit innra með sér að hann verður að sannreyna hana og hlusta á undirmeðvitund sína. Það er persóneinkenni vogar að manneskjan láti ætíð hjartað ráða og það hikar Viktor ekki við að gera.

Vikor er mjög skapgóður og yfirvegaður og líður vel í góðra vina hópi. Hans helstu áhugamál eru snjóbretti, fótbolti, bílar og tónlist. Eitt er víst með hann Viktor og það er að ipodinn hans er alltaf eitthvað sem gaman er að komast í, enda er hann stútfullur af góðri tónlist. Hann hlustar aðallega á létt rokk, gott rokk, indie og stundum á hiphop. Hans uppáhalds hljómsveit er Coldplay og lagið Yellow er í sérstöku uppáhaldi, en hann valdi það einmitt sem rómantíska lagið sitt.

Þó Viktor sé auðvitað fjallmyndarlegur drengur, með hvítar tennur og vel vaxinn þá spáir hann ekkert voða mikið í fötum, þó hann sé nú alltaf uppádressaður í Levi’s og Adidas aðallega. Til að viðhalda vaxarlagi sínu og þokka fer hann reglulega í ræktina eða stundar aðra hreyfingu.

Viktor er rosalega hress og skemmtilegur strákur, og aldrei er of langt í húmorinn og brosið. Hann er þó mjög alvarlegur þegar kemur að ástarmálum enda er hann metnaðarfullur í lífinu og ætlar að komast langt og vera ávallt með góða konu sér við hlið. Hann fer ekki í samband nema heilshugar og því hefur hann aðeins verið í 1 alvarlegu sambandi áður. Ef hann fyndi draumastelpuna sína fljótlega þá færi hann með hana á fyrsta deit í Vesturbæjarís í Hagamel. Hann á erfitt með að gera upp á milli þess að rúnta eða kúra og velur þess vegna bæði, jafnvel í einu. En þó hann sé rómantískur mjög þá labbar hann hálfgerðalega á línunni sem skilur rómantíska gaurinn að frá playernum.

Til þess að koma því á hreint þá er Viktor að leita að stelpu í kringum hans aldur. Hann vill fara í samband með fallegri stelpu með hugsun í lagi. Það sem hann metur mest í fari stelpna er hreinskilni. Hann trúir ekki á ást við fyrstu sýn og er alls alls ekki fylgjandi framhjáhöldum.

Stelpur, eftir að hafa fylgst og talað við Viktor í nokkurn tíma vegna þessa titils get ég ekki annað en mælt með honum sem kærasta. Það er mikið í hann spunnið, hann er góður strákur sem vill öllum vel og hann er mjög gott eiginmannsefni. Hann hefur allt sem þarf; útlit, persónuleika, metnað, bíl.. Ef ykkur líst eitthvað örlítið á hann, prófið að senda honum skilaboð. Hann er opinn fyrir öllum stelpum. Hver veit hvað gæti gerst?


Ef þið hittið Viktor einhvern tímann á djamminu þá er hann gæinn sem kemur upp að ykkur og segir: Djöfull kannast ég eitthvað við þig?!



Smelltu hérna til að senda vikkia87 skilaboð!