Váá ég las blogg hjá vinkonu minni um daginn og Þetta er bara svo svakalega sætt.. :) Bloggið var svona…en já ég hef nú tekið út öll nöfn þó.

Góða kvöldið.

Mig langar svona aðeins að deila svolítlu með ykkur í stuttu máli. Það er strákur, sem ég hef verið ofboðslega hrifin af í 2 ár.

Hann er dökkhærður, með brún augu og stærri en ég. Ég kynntist honum vorið 2004, hitti hann í fyrsta sinn í sundi með **** og **** og varð strax pínu hrifin. Um kvöldið fórum við öll 4 saman í bíó ásamt fleirum á Van Helsing. Ég og þessi strákur sátum hliðin á hvort öðru og vorum víst bæði að hugsa um hvort annað á meðan á myndinni stóð. Ég man meira að segja ennþá þegar hann bauð mér popp þarna, híhí.

Um kvöldið kveikti ég á tölvunni og fór inn á msn, þá var einhver búinn að adda mér inn á hjá sér, það var hann. Við spjölluðum saman eitthvað frameftir og áfram næstu daga og vikur þar til hann fór út á sjó. Að sjálfsögðu fékk ég hringingar frá honum þaðan. Mig var farið að hlakka ansi til þegar hann kæmi heim eftir 2 vikur á sjó, nema þá fór hann strax til Spánar. Seinna um sumarið fór hann síðan til Danmerkur.

Vinátta okkar sumarið 2004 var svona sundur og saman en töluðumst mikið saman þrátt fyrir fjarlægðirnar alltaf á milli okkar. Fékk meðal annars póstkost frá honum þegar hann var á Spáni og núna hangir það á speglinum mínum. En síðan kom haustið, þessi indæli piltur var að byrja í framhaldsskóla og hættum við alveg að talast saman eftir dágóðan tíma. Ég hugsaði oft til hans þrátt fyrir það.


Í byrjun árs 2005 frétti ég í skólanum að enginn vissi neitt um hann, hann var horfinn. Og þegar hingt var í gsm símann hans kom bara að þetta númer væri ekki til. Auðvitað komu áhyggjur hjá mér og reyndi að ná í hann allsstaðar. Að lokum komst ég að því að það hefði verið brotist inn til hans. Þvílíkur léttir að vita loksins af honum. En eftir þetta urðum við nánari og byrjuðum að tala meira saman og hittast aftur. Síðan 07.02.05 byrjuðum við saman.


Þetta er besti strákur sem ég hef á ævi minni kynnst. Ég elska hann virkilega mikið núna. Alltaf gaman að eyða tímanum með honum, jafnvel þótt ekkert sé gert. Hann heitir ****** **** ****** og bannað er að stela honum, hann er heldur ekki til lánis


Ef þetta er ekki rómantískt þá hvað?