Það er sunnudagskvöld
sólin er sest og kvöldið rétt að byrja
Ég ákvað að koma þér á óvart
Þetta verður kvöldið okkar

Ég hringi í þig & bið þig um að koma heim
Þú kemur eins og elding & heldur að eitthvað sé að
Það er ekki, svara ég
Mig langaði bara að fá þig snemma heim

Ég bið þig um að taka þig til fyrir kvöldið
Er þú ert tilbúin bindi ég fyrir augun þín með svörtum klút
Þú glottir út í annað og spyrð hvað ég sé að gera
Það kemur í ljós, svara ég um hæl og brosi

Ég leiði þig út í bíl og keyri af stað
Við keyrum í smá tíma svo þú tapir áttum
Þú situr spenntur eftir að við stoppum á áfangastað
Loksons loksins, við erum komin

Ég hjálpa þér út út bílnum og losa klútinn frá augunum þínum
Bíð spennt eftir viðbrögðum þínum við staðnum
Þú kannast strax við staðin & veist hvað ég er að reyna að segja
Þetta er staðurinn okkar. Heiðmörk


Ég vissi ekki alveg hver ég átti að setja þetta, en ákvað því að láta þetta hér. Ég hafði ekkert að gera eitt kvöldið & ákvað að skrifa eitthvað á blað & þetta er útkoman.


Mig langar að tileinka unnusta mínum þetta :o)
<img src="