Eitt sinn svaf ég hjá strák sem átti kærustu en hún var í örðu landi þegar þetta gerðist. Við vorum bæði fremur drukkin en hvorugt okkar hafði þó planað að láta þetta fara svona eins og fór. En jæja, þetta gerðist á föstudagskvöldi og fór strákurinn heiman frá mér snemma morgunin eftir. Við töluðumst við síðan um daginn og veltum því fyrir okkur hvað var að gerast.. Hann endurtók í sífellu að hann væri samt ekkert að fara frá kærustunni sinni fyrir mig, og sagði ég líka við hann ég væri heldur ekkert að ætlast til þess. Þetta bara gerðist. En ekki að það sé einhver afsökun fyrir gjörðum okkar. En þetta laugardagskvöld fer ég svo á djammið með vinkonum mínum og hitti hann þá á einum skemmtistað borgarinnar og hann segist vera edrú og á bíl og hvort ég vilji ekki far heim. Auðvitað þáði ég það þar sem taxar eru nú ansi dýrir. Þegar heim kom, fór hann með mér inn því hann sagðist þurfa á klósettið sem ég auðvitað neitaði honum ekkert um. En jæja.. svo lagðist ég uppá rúmið mitt bara í öllum fötunum og var að fara að sofa.. og hann situr þarna hjá mér og er eitthvað að tala um gærkvöldið.. Hann sagði að hann hefði verið svo fullur að myndi eiginlega ekkert eftir neinu. Svo það sem kom mér nú mest á óvart var það þegar hann spurði hvort við gætum ekki endurtekið leikinn því hann væri hvort eð er búinn að halda framhjá og hvaða máli skipti því að gera það aftur og núna að muna eftir því. Ég sagði við hann að ég væri svo þreytt að ég vildi bara fara að sofa. Sem ég og gerði en hann reyndar svaf við hliðina á mér þessa nótt. Eftir þetta ákváðum við að engin sála fengi að heyra um þetta því hann vildi ekki að kærastan sín fengi að komast að þessu. Og þótt það skipti mig engu máli þá samsinnti ég því bara og þurfti hvort eð er ekkert að vera að tala um þetta. En síðan var greinlega vini þessa stráks sem grunaði að eitthvað hefði gerst á milli okkar og þóttist vita þetta og fékk það því uppúr mér hvað gerðst hefði. Þannig strákurinn neyddist til að segja kærustunni sinni frá þessu svo hún myndi þó allavega heyra þetta fyrst frá honum. Eftir því sem ég best veit ákvað hún að fyrirgefa honum þetta og héldu þau áfram sambandinu, en hann fékk eitthvað hatur á mig í staðinn.
Spurning mín í svona máli er, var þetta ekki bara hræðilegur drusluskapur af honum? Þetta er nú ekki meira mér að kenna heldur en honum að þetta skyldi þó í fyrsta skipti hafa gerst. En hann að biðja um það aftur?

Kv,

LadyGay