Sæl öll. Þetta er smá prufa hérna hjá mér á /rómantík en þessi hugdetta kom allt í einu þar sem að töluvert margir korkar að undanförnu hafa snúist um auglýsingar eftir áhugasömum einstaklingum eða vandamál um að finna hinn rétta einstakling. Ef að þú ert áhugasamur/söm um að vera piparsveinn eða piparstúlka komandi vikna, endilega sendu mér skilaboð með fullt af upplýsingum um sjálfa/n þig eða biddu mig um spurningar!

—————————————–

Carrera er 16 að verða 17 ára karlkyns hugari sem er að leita að áhugasömum stelpum. Hann er í tvíburamerkinu og býr á Selfossi en ólst upp í Vesturbænum og í Mosfellsbæ. Hann er metnaðarfullur og stundar nám í FSU þar sem hann er á almennri braut en fer í Borgó á næsta ári og stefnir á bifvélavirkjun. Hann vinnur líka með skólanum.

Ef hann þyrfti að tengja sjálfan sig við eina týpu þá væri það hip-hop týpan. Fatatískan hans er þar að auki í einu orði bara hip-hop. Hann er 178-180 cm á hæð og bara helvíti krúttlegur og auðvitað með smá massa. Hann er ekki með nein tattú eða göt en er að fara að fá sér tattú. Hann á sér enga fyrirmynd í útliti nema bara sjálfan sig en fyrirmynd hans í lífinu er 2Pac.

Tónlistin sem hann hlustar á er gangsta rapp og uppáhaldshljómsveitin hans er NWA og söngvari er 2Pac. Hann á sér auðvitað rómantíska hlið og uppáhalds rómantíska lagið hans er Fealin' you in sterio með JayZ og R.Kelly.

Uppáhalds skyndibitinn hans er KFC og KFC er einnig uppáhalds veitingastaðurinn. Þegar hann er spurður um hvert hann myndi fara með draumastelpuna á fyrsta stefnumót þá segir hann að það fari allt eftir því hvað hún vill. Hann er vel mixuð blanda af player og rómantískum gaur og segir einnig að val á milli þess að rúnta eða kúra fari algjörlega eftir skapi.

Hann er aðallega að leita að góðri stelpu sem hann getur treyst og svíkur hann ekki sama hvað á bjátar. Það sem hann metur mest í fari stelpna er bara persónan sjálf en hann fyrirlítur rasista. Þegar hann er spurður um hvort hann trúi á ást við fyrstu sýn þá er svarið bæði og. Honum finnst framhjáhöld alls ekki sniðug og talar þar af reynslu. Það sem veitir honum innblástur í lífinu eru róleg rapplög sem láta hann byrja að hugsa um lífið og fleira. Honum finnst borg og strönd um sumar mest aðlaðandi og hann á enga uppáhalds pikkup línu því þær eru of margar og erfitt er að velja á milli.

Leyfum Carrera sjálfum að eiga lokaorðin..

“ef þið viljið meiri uppl. sendið kallinum PM ;)”

Smelltu hérna til að senda Carrera skilaboð!