Ég þakka öllum fyrir afskaplega góð ráð. Eftir mikin sálargrafning og ykkar ráð þá ætla ég að þegja yfir þessu. Það er rétt hjá ykkur að hún á ekki skilið að vera dreginn inní þetta og samviskubitið sem ég ber væri ekki verra en það að vita af því hversu mikið ég hef sært hana.

Ég hef beðið Guð um að fyrirgefa mér og ég er að vinna í því að fyrirgefa sjálfum mér og kasta þessu burt frá mér. Ég veit að ég tek gleði mína aftur þegar ég sé hana og börnin mín. Það er satt sem þið segið að ég kem til með að vera miklu betri hlustandi og eiginmaður en ég var áður. Sársaukinn sem þetta mér veldur gefur einnig tilkynningu um það hversu GÍFURLEGA ég elska konuna mína.

Takk fyrir enn og aftur fyrir góð ráð.