Langar aðeins að deila með ykkur smávegis af minni reynslu sem hefur ekki verið að gera góða hluti í kollinum á mér undanfarið.

Ég er þannig manneskja gerð að ég vil allt fyrir alla gera og reyni eins og ég get að láta alla líða vel í kringum mig og er oftast manneskjan sem hlustar á aðra þegar þeim líður illa, ekki svo margir ef það er einhver sem gefur sér tíma til að hlusta á mig.

En þetta byrjaði semsagt allt fyrir 10 árum síðan en þá var ég 15 ára gömul. Ég var í grunnskóla eins og flestir á þeim aldri og átti frábæran kærasta og þetta var frábær vetur en þetta var líka sá besti kærasti sem ég hef átt enn í dag. Eftir að leiðir okkar skildu eftir skólan tók við djammið og framhaldsskólinn og ég var ekki í neinu sambandi að ráði fyrrenn ég var orðin 19 ára aftur, þá byrjaði þetta formlega, ég kynntist manni sem var 7 árum eldri en ég og við fórum að deita og svo að sofa saman og allt voða kósý, komst reyndar seinna að því að hann var að sofa hjá okkur 2 í einu þegar við vorum að byrja, en svo vildi svo óheppilega til að ég varð ófrísk eftir hann svo að ég held að hann hafi hætt við hina útaf því. En ég missti þetta fóstur og þá tók bara við ágætis samband hjá okkur sem var mjög gott alveg fram á sumar en þá kom stelpa inná heimilið hjá honum til vinnu sem hann fór að sofa hjá líka án þess að ég vissi, stóð þau reyndar að því að vera að kyssast á balli en hann sór allt af sér og heimska ég trúði honum.

Sambandið hélt áfram en við hittumst sjaldnar og síðar kom í ljós þegar hann dömpaði mér að hann var búinn að vera líka á föstu með annari í 3 vikur áður. Þá tók við hjá mér reiðin og ég hefndi mín á honum sem varð til þess að hann reyndi að fá mig aftur. Það endaði bara á einn veg ég var orðin viðhaldið hans. Á sama tíma átti ég mjög góðar vinkonur sem ég treysti fyrir þessu leyndarmáli mínu en þær reyndust ekki vera mér trúar og þetta var komið um allan vinarhópinn áður en ég vissi af, stuttu síðar endaði ég sambandið.

Við tók annað samband nokkrum mánuðum síðar, kynntist strák á sama aldri og sá fyrri og vorum mjög góðir vinir sem endaði með sambandi, eftir mánaðar samband flutti ég til hans og 2 vikum síðar byrjaði það… hann beitti mig andlegu og líkamlegu ofbeldi, ekki að hann barði mig beint í andlitið heldur snéri hann uppá hendurnar á mér og hélt mér hálstaki svo ég var marin á hálsi og höndum oft. Hann kallaði mig feitt svín (sem ég var ekki þá) og að ég væri svo lót og ógeðsleg, það tók mig 4 mánuði að losna frá honum, eða losna hann ofsótti mig heimtil mín og barði íbúðina alla að utan, eyðilagði bílinn minn og sendi mér hótunar bréf á emailið mitt í vinnuni. Það varð til þess að ég treysti mér ekki út á meðal fólks í fleiri mánuði, fór aldrei í kringluna, aldrei í bæinn.

Þegar ég var að losna við hann fékk ég mikla hjálp frá strák sem ég hafði kynnst nokkru áður og var alveg yndislegur við mig, bæði hann og konan hans en það entist ekki lengi sem bara vinskapur því áður en ég vissi af vorum við farin að sofa saman líka svo aftur var ég orðin viðhald, ég kolféll fyrir þessum en ákvað að enda sambandið þar sem ég meikaði ekki konuna hans.

nokkru síðar kynnist ég hreint frábærum manni og ég fer í samband með honum þrátt fyrir þennan á undan, ég hætti aldrei að hugsa um hann allan tíman sem ég var með þessum nýja kærasta en hann var mjög lokaður og tjáði sig lítið svo mér fannst ég aldrei vita hvar ég hafði hann það samband endaði núna í ár og útúr því skreið ég með ekkert sjálfsálit og lítinn vilja til að lifa lengur. En ég fór að hitta aftur þennan á undan sem ég hafði ekki gleymt og við vorum alveg búin að ákveða framhaldið þegar ég fékk þær fréttir að hann var hvorki meira né minna með 3 aðrar í takinu fyrir utan konuna sína og sagði allt þetta sama við okkur allar. Ég gjörsamlega brotnaði niður þá fannst mér þetta nóg komið og helti mér útí djamm og gleymdi kauða.

Í dag er ég svo aftur búin að kynnast manni sem ég get ekki hleypt að mér… ég get ekki treyst honum ég er að fá martraðir þar sem hann er alveg eins og fyrsti gaurinn sem fór illa með mig og hreinlega líður mjög illa yfir þessu… hvað á ég að gera!!! hvernig á ég að fara að treysta aftur?? afhverju get ég ekki bara verið róleg yfir þessum gaur og séð hvað gerist??

úff ef þú ert ennþá að lesa þetta rugl máttu endilega komentera á þetta ég þarf það alveg og ef þið þekkið eitthvað svona trítment við þessu látið mig vita.

takk takk
Kveðja Malin