sæl. mig vantar smá aðstoð frá ykkur eða skoðun.
jæja þannig er nú mál með vexti að ég og mín frú höfum verið saman í 10 ár þótt ég sé nú ekki nema 23 ára og hún ári eldri, en hvað með það, við eigum einn lítin prins sem er að verða 2 ára núna fljótlega.

Þannig er að við erum nýflutt til teingdamömmu því við erum að byggja okkur hús, bara aðeins að leyfa ykkur að vita um okkar aðstöðu þótt svo það komi því ekkert við sem að ég er að reyna að segja ykkur.

þannig er að frúin min hélt frammhjá mér um daginn,hún seigir að ekkert annað en koss hafi átt sér stað en ég á bísna erfitt með að trúa því,hún var nefnilega stundum að rúnta með þessum strák og hitta hann mér að óvitandi,þau voru oft að spjalla á msn og mart fleira.

hvað fynst ykkur um hennar hegðun og hvað á ég að gera, ég á nefnilega erfitt að fylgjast með henni því ég er nefnilega sjómaður, þótt svo ég hafi verið í landi þegar þetta gerðist.

Jæja hvað fynst ykkur um þetta.