Já hæ..ég verð að koma þessu út úr mér..En ég skal reyna að gera þetta auðvelt til að skilja en ég bara vona að þetta sé ekki of gelgjulegt eða eitthvað.

Þetta byrjaði allt með því að ég var með strák í 3 vikur, sem er mjög lítið, en sambandið gekk ekki, vegna endalausum rifrildum þannig því lauk bara. Köllum hann Gunnar. 2 dögum eftir sambandsslitið byrjaði ég að tala við besta vin hans Gunnars, köllum hann bara Sigga. Siggi var alveg frábær, vantaði ekki góða skapið í hann. Talaði samt eiginlega bara við hann á Msn en alltaf bara “HÆ :)” þegar við hittumst úti á götu. En allavega, þá er ég orðin ÝKT HRIFIN af honum. Ég hef alveg hitt hann og sagt meira en “Hæ” þið vitið, samt þekki ég hann ekkert mikið. En Hann segist líka vera hrifinn af mér. En ég er þessi feimna týpa sem þorir varla að segja orð en hann gaf mér aðeins að drekka og mér fannst það svo gott að ég ætla að byrja að drekka. Ekki setja neitt út á það.
En ég er að vellta fyrir mér, af því hann er eini í vinahópnum hans sem er hreinn, er hann kannski bara að daðra við mig til að geta riðið mér og svo bara Bæ? hann er alveg frábær, mjög skemmtilegt að tala við hann, mjög sætur og fyndinn og hefur allt sem ég vil hafa í strák. En af því hann er svona vandræðaunglingur eða þannig, þá er ég að vellta þvi fyrir mér ef hann sé bara að leita sér að stelpu sem hann ætti kannski séns í? Því ég er ógeðslega hrifin af honum og ef þetta er það sme hann er að hugsa á ég eftir að brotna þvílíkt niður og verða eins og ég veit ekki hvað!?
Hvað finnst ykkur að ég ætti að gera? :(

p.s. Ekki segja mér að finna mér einhvern annan, því þetta er eini strákurinn sem ég gæti nokkurn tíman verið hrifin af og er bara ýkt hrifin af honum