Ég ætla að koma mér að efninu strax þó ég viti bara alls ekki hvar á að byrja.

Ég er búinn að vera með stelpu núna í rúm 4 ár og hefur sambandið gengið mjög vel, eða bara eins og önnur sambönd, þeas það koma upp vandamál sem eru síðan leyst og allt í góðu. Ég er ótrúlega hamingjusamur með henni og dýrka hana.

Ég hafði verið með stelpu í skóla í nokkurn tíma og aldrei neitt pælt eitthvað svakalega í henni.
Ég þekkti hana ágætlega og við gátum alveg talað saman.
Þessi stelpa er ólýsanlega falleg, góð og skemmtileg og ég vissi það alveg en hún var bara “stelpa í skólanum”

Svo gerist það fyrir nokkrum vikum að við lendum saman á djammi. Við erum nokkur saman og ég tek eftir því að hún er eitthvað að reyna að nálgast mig og reyna að leiða mig og svona en ég pæli ekkert meira í því þó mér finnist það hálf óþægilegt þar sem ég er með stelpu og fólk gæti farið að halda að við værum eitthvað að stinga saman nefjum.
Svo ákveðum við ásamt nokkrum öðrum að splitta frá hópnum og förum að rölta eitthvað í bænum. Við stoppum fyrir utan eitt af hótelum bæjarins og fáum að fara á klósettið.
Á meðan fólk er á klósettinu segi ég við hana að hún geti ekki látið eins og við séum saman því ég sé á föstu. Ég sagði henni einnig að ef ég væri ekki á föstu væri ég vitlaus í hana þar sem hún væri algjört æði og gull falleg, en þar sem ég væri með stelpu væri það ekki að ganga núna.

Það sem gerðist eftir þetta er eins og í móðu og ég reyni að rifja þetta upp oft því ég get ekki hætt að hugsa um það.
Hún tjáði mér hversu hrifin hún væri búin að vera af mér í langan tíma og hvað hana dreymdi um okkur saman og hvað hún yrði hamingjusöm að vera með mér því ég væri algjör draumaprins og ég sá það að hún var virkilega ástfangin.
Þetta kom mér mjög í opna skjöldu þar sem ég hafði ekki haft minnstu hugmynd um þetta.
Hún sagðist hafa fylgst með hvað ég væri góður við mína kærustu og hún vildi alls ekki skemma það samband fyrir mér en hafi bara misst þetta allt útúr sér því hún gæti ekki hætt að hugsa um mig.
Svo baðst hún afsökunar á að hafa sagt þetta og við ræddum það ekki meir.
Daginn eftir talaði ég við hana um þetta og hvort hún hafi bara verið að fokka í mér, en hún sagði svo ekki vera.
Hún sagðist virða það svo við mig hvað ég væri trúr í sambandinu mínu og hvað ég væri góður og yndislegur og hún vildi aldrei gera mér það að skemma samband mitt. Henni liði illa yfir hversu vonlaust þetta væri að við myndum byrja saman en ég bað hana að reyna það sem hún gæti til að gleyma mér. Ég sagði henni líka aftur að hún væri yndisleg stelpa og falleg en ég gæti ekki lokið mínu sambandi. Ég tók af henni það loforð að við myndum aldrei tala um þetta aftur og hún myndi ekki minnast á þetta við neinn og ég ekki heldur.

Það er nokkuð langt síðan þetta var og ég er ennþá að hugsa um hana og það sem hún sagði mér.
Ég hef séð að hún er ekki sú sama…ekki eins og hún á að sér að vera og ég hef séð hana gráta í laumi þegar hún heldur að enginn sjái..
Vandamál mitt er að ég hef reynt hvað sem er til að reyna að hætta að leiða hugann að þessu en í hvert skipti sem ég sé hana fer hugur minn aftur að reika og ég hugsa: “Hvað ef? Hvað ef hún er nú mín eina rétta?” “Hvað ef grasið er grænna hinumegin?”
Hvernig í ósköpunum get ég hætt að hugsa um hana? Hvað er að mér?
Er ég að verða ástfanginn af henni eða er ég það nú þegar?
Ég hef grátið mig í svefn við að reyna að losna við þessar hugsanir en ekkert gengur
Ég hef aldrei á ævi minni verið svona ruglaður í hausnum í svona langan tíma og aldrei á ævinni átt svona erfitt með að skrifa eitt bréf því ég veit ekkert hvað ég á að segja!!
Gerið það reynið að hjálpa mér og segja mér hvað ég á að gera eða hvað er að mér!!
Ég veit að það er fullt af snillingum hérna á Huga sem geta komið með góð svör.

Takk fyrir að lesa þetta..
Lotion