Þú sagðist vera heiðarleg en þú ert það ekki.

Ég hélt að við hefðum náð vel saman og allt væri í lagi en svo var ekki.

Þú sagðir aldrei neitt en hélst bara áfram að vekja hjá mér vonir.

Síðan hættir þú að tala við mig og virtir mig að vettugi.

-
Hvað er hægt að segja þegar “góðar” stelpur haga sér svona. Er þá einhver von? Eru góðar stelpur útdauðar? Ég fer bráðum að halda það.

Þú hefur kennt mér að gott fólk er vandfundið (en ég vissi það fyrir) og það er rétt að treysta helst engum (því fólk bíður í röðum með að stinga rýtingi í bakið á öðru fólki). Til hamingju með það, þú hefur skemmt einn einstakling og þjóðfélagið er fullt af þeim.

Þú hefur kennt mér að bera minni virðingu fyrir stelpum því oft er ekki að marka orð af því sem þær segja og þú getur ekki treyst því að það sé satt.

Meira af þessu og þá hefur þú búið til einstakling sem kemur fram við stelpur eins og skítinn á skónum sínum og ber enga virðingu fyrir þeim. Einnig til hamingju með það, þú ert frábær kennari!

-
Hvað er að fólki? Er þjóðfélagið virkilega orðið svona sjúkt að þar býr mest ógeðslegt fólk? Hvað varð um heiðarleika og kurteisi í mannlegum samskiptum? Skiptir þetta einhverju máli lengur? eða er búið að gera þetta útlægt, kannski má þetta bara vera til á yfirborðinu og EKKERT er meint með þessu en undirniðri ríkir ALGJÖRT tóm.

Af hverju þarf fólk að koma svona fram við annað fólk? Er þetta bara eðlilegt og hluti af lífinu og svona Á þetta að vera? Reyndu bara að venjast því aumingi! Ég fyrir mitt leyti neita að smitast af þessu og vera svona veikur eins og þetta fólk.

Bráðum segi ég skilið við ykkur stelpur og eyði ekki tíma mínum lengur í svona vitleysu sem skilar ENGU nema erfiði og sársauka.

Það er engin furða að skilnaðir séu tíðir þegar fólk hagar sér svona. Hvar lærir það þetta. Er það kannski meðfætt að vera asni eða þarf maður að læra það eins og ég virðist vera byrjaður á samkvæmt ofangreindu!

Síðan á páskum og jólum þá er tekið til í fjölskyldunni og fyrirhafnarlausa ástin sem reyndist síðan ekki vera fyrirhafnarlaus, akkuru! deyr. Þú átt að gera mig hamingjusama/n. Lífið á að vera eins og í hollywoodbíómynd en er það ekki, akkuru! Þetta eru vörusvik og ég vil fá líf mitt aftur!