Oki ég er ný hér á huga og er þetta fyrsta greinin sem ég skrifa og please sýnið tillitsemi….. :D

En ég ákvað að skrifa þessa grein inná rómantík því ég vissi ekki hvar annarsstaðar þetta passaði.

en málið er þannig að ég er 15 ára stelpa og byrjaði með strák sem er 17 ára. En sambandið hófst þannig að ég byrjaði með honum í janúar eftir að hann hafði addað sig inná msn-ið hjá mér og 5 dögum seinna hitti ég hann í fyrsta sinn á ævi minni. þá meina ég, ég talaði við hann í fyrsta sinn. Hann býr í sama bæ og ég og hafði ég séð hann, en ekki tekið eftir honum nema eftir öll samtölin sem við áttum á MSN.
Af hverju hitti ég hann eftir aðeins 5 daga kynni? jú hann sagðist vera orðinn ástfanginn af mér og enþá veit ég ekki hvort hann lýgur þessu að öllum eða ekki!
en já ég fór til hans, við byrjuðum saman en eftir 3 daga vildi hann byrja að gera eitthvað kynferðislegt. Ég passa minn líkama og sagði bara nei við hann en það virtist sem hann skyldi það bara alls ekki. Svo kom þessi setning sem gerði með brjálaða : ,,er við gerum ekki neitt eins og önnur pör gera, þá erum við svo öðruvísi… ég vill vera eðlilegur´´ ég vona að þið skiljið þetta en þá varð ég reið og fór heim og hugsaði hvað ég ætti að gera í þessu. 2 vikur voru liðnar og ég var að tala við hann á MSN og spurði hann hvort honum findist þetta samband ganga eitthvað. Hann byrjaði að ruggla mig og sagði bara eitthvað jájá, neinei, kannski júú… ég skil ekki svona og sagði bara við hann að mér finndist þetta ekkert ganga. Þá fórum við að rífast og það endaði með því að ég reif sambandið á milli okkar. Ég veit það var soltið fáránlegt að slíta sambandinu á MSN en það var besta leiðin því mig langaði ekkert til þess að tala við hann. i know, skrítið :S
En key, svo eftir tvo daga þá byrjaði hann að kalla mig hóru og tík því hann frétti einhversstaðar niðri í bæ að ég væri strax byrjuð að dúlla mér með einhverjum öðrum, en það er bara lygi en hann trúði mér ekki og var bara bálreiður útí mig. Eeen eftir 3 daga r some þá frétti ég að hann væri farin að reyna við vinkonu mína (samt ekki mjög nána vinkonu mína) og ég var soltið svekkt því hann var búinn að ráðast á mig með orðum en svo var hann sjálfur farinn að huzzla aðrar stelpur.
Ég talaði við hann og það endaði með því að ég varð aftur alveg svakalega hrifin af honum og við vildum bæði byrja aftur saman, en hann var að fara til RVK þannig við gátum ekkert hisst.

En núna er ég í vondum málum því ég vil ekkert með hann hafa… og ég veit, ég er hræðileg fyrir þetta en ég reyndi fyrst bara að vingast við hann svo að hann hætti að kalla mig hóru og tík sem hann átti ekkert að gera því ég hef ekkert gert af mér. En allt endaði þetta með því að við ætlum að prufa aðra tilraun í sambandi við þetta allt saman.

Ég er enn ekki búin að tala um þetta við hann, það er að segja að ég vilji ekkert meir með honum og er alveg in deep shit því ég veit ekki til hvaða bragðs ég á að taka :S

veist þú það?
ef svo máttu segja skoðun þína!

en aðeins svona að lokum. Hann sagðist vera orðinn ástfanginn af mér áður en hann var búinn að hitta mig. Getur það nokkuð verið satt? :S

p.s ég biðst afsökunar á stafsetningarvillum og bara please… ekkert skítkast takk fyrir :D:D
Aiight;]