Ég er 16 ára strákur og er eins og margir aðrir á fullu í að djamma og lifa lífinu.
Ég hef nokkuð sterkar tilfinningar líka stundum og er alltaf að reyna að finna einhverja rétta stelpu.
Ég nenni ekki að telja upp hversu margar stelpur ég hef farið í sleik með enda gerir maður það í partýum (stundum eru það svona SPK leikir eða eitthvað). Mér hefur aldrei fundist þetta eitthvað voðalega gott og ég verð að segja að áður en ég hafði kysst einhverja stelpu var ég alltaf svo spenntur fyrir hvernig það mundi vera en ég varð fyrir hálfgerðum vonsvikum þegar ég kyssti þá fyrstu. Ég byrjaði líka með einni stelpu eftir sleik í partýi fyrir svona 2 mánuðum en ég var ekkert að fíla þetta og dömpaði henni.
Á Nýársnóttinni var ég í partýi og skemmti mér konunglega og klukkan 00:00 fóru allir út og kveiktu á flugeldunum. Ég hitti stelpu þarna úti sem var gullfalleg og hún kynnti sér fyrir mér. Hún leit ekki út fyrir að vera neitt voðalega full (ekkert meira en ég). Ég kveikti á terunni minni og bakkaði að henni og tók utan um hana. Svo horfðum við á hana sprengjast í loftinu og eftir það föðmuðumst við og byrjuðum að kyssa. Hún var virkilega góð og mér leið virkilega vel við að kyssa hana. Hún tók í höndina mína og leiddi mig burt frá öllum öðrum og við héldum áfram í nokkurn tíma. Svo fékk hún símanúmerið mitt. Eftir smá stund hringdi mamma hennar og hún þurfti að fara heim. Þegar hún var að fara öskraði hún að hún ætlaði að hryngja í mig.
Ég fattaði þetta allt eiginlega ekki þá og fór bara inn aftur að dansa við allar stelpur og djamma á fullu.
Þetta partý var svona fínt þar sem að allir voru í jakkafötum. Partýið var líka í einbýlishúsi.
Allir þurfti að fara þaðan klukkan 2:30 og ég var hvort eð er búinn að lofa nokkrum vinum mínum að ég mundi koma til þeirra í annað partý. Það partý var miklu brjálaðara og subbulegra. Þá var ég aðeins farinn að vakna meira og áttaði mig á því hvað þetta var fullkomin stelpa þarna.
Þegar að við fórum í SPK og ég átti að kyssa einhverja stelpu langaði mér það ekki.
Núna er ég búinn að vera í burtu frá henni og ekki heyra frá henni í 2 daga og hugsa um hana allan tímann. Það eina sem ég á er mynd af henni sem ég smellti með digital myndavélinni minni.
En hún er með númerið mitt og ég treysti á það að hún hringi í mig.

Kv. StingerS