Ég er ungur framhaldsskólapiltur sem hefur ekki einu sinni kysst stelpu. Ég er ekki sá allra myndarlegasti en ég er alls ekki það slæmur að ég geti ekki náð mér í eina ágætis stelpu miðað við hvað aðrir segja og ef ég ber mig saman við aðra stráka. Vandamálið er líka það að ég hef BARA séð eina stelpu í 1 og hálft ár og get ekkert að því gert. Ég er orðinn svo leiður á þessu ástandi að ég verð hreinlega að deila þessu eða a.m.k. að tjá mig einhvernveginn. Endilega kommentið

Í ágúst 2003 heillaðist ég upp úr skónum af stelpu sem er á aldri við mig og vorum við þá alveg ágætisvinir. Ég fór svo ekkert almennilega að “reyna við hana” fyrr en í nóvember og var það mjöööög saklaust. En hún sá ekkert við mig nema að ég væri góður vinur og bla bla bla.
Eftir áramót eða réttara sagt í Mars. Byrjaði hún svo með gaur sem ég hef alltaf þekkt ágætlega en hún hafði þekkt hann eitthvað að viti í mánuð og get ég ekki lýst því hvað ég var afbrýðissamur. Ég komst samt að vissu leiti yfir það og var búinn að gleyma henni í lok apríl. Svo hættu þau saman um sumarið. Ég hafði svolítil samskipti við hana um sumarið en varð samt ekki nærri því svona svakalega hrifinn af henni og ég hafði verið. En hafði samt ekki mikinn áhuga á öðrum stelpum. Svo flutti ég í haust en hef þó komið 2 sinnum heimsóknir á staðinn þar sem við bæði bjuggum og hún býr enn. Á nýja staðnum var ég staðráðinn í að ná mér í stelpu í eitt skipti fyrir öll. En allt kom fyrir ekki. Í 1.lagi heillaði enginn mig eitthvað alvarlega mikið og í 2.lagi sýndi engin mér áhuga.
Í haust byrjaði ég svo aftur að verða hrifinn af þessari draumastúlku og þá ekkert litið. Ég hélt þá að það hlyti að vera að hún væri sú eina sanna. Fyrst ég sæi bara hana Ég ákvað bara að segja henni hvernig mér liði. En hún sagðist bara sjá mig sem vin. Ég reyndi að gleyma henni en allt kom fyrir ekki.
Um jólin hef ég dvalið á þessum stað sem ég bjó á en því miður lítið hitt hana. Nema í partýi á 2. í jólum. Þá reyndi ég mikið að tala við hana og svona. En hún sá mig bara sem vin…held ég. Allavega sýndi hún mér ekki meiri áhuga en öðrum svo ég tæki eftir. Svo var ég samferða henni heim og kyssti hún mig á munninn bless. Ég fattaði það samt ekki fyrr en 10 sek eftir að hún hefði gert það. Leið bæði sem hamingjusamasta manni í heimi en um leið var ég vonsvikinn. Ég er samt voða hræddur um að þetta hafi verið vinakoss því að hún er einhvernveginn þannig..held ég. Þá erum við kominn að deginum í dag og ég held að ég hafi aldrei verið jafn hrifinn af henni!

Hvað á ég að gera?
Á ég séns?
Afhverju get ég ekki fundið bara einhverja aðra sem er jafn æðisleg?…ég fer að verða svolítið hræddur um að ná mér ekki í stelpu fyrir tvítugt jafnvel!

takk fyrir að nenna að lesa þetta:)