Okey ég vissi ekki hvar ég átti að setja þessa grein þannig ég setti hana bara hingað inn!!!
Enn svona er sagan…..
Um helgina vorum ég og vinkona mín og kærastinn hennar að djamma heima hjá þeim! Þau rífast mjög oft sko :/ Ég er 17 ára, Vinkona mín er 16 ára og kærastinn hennar er 20 ára!!!! þau eru búin að vera saman í rúmlega 2 ár!!!
Hann var orðin vel í því enn hún nennti ekki að drekka….Svo eyðilagði ég óvart kveikjarann þeirra og hún(segjum bara Stina) klikkaðist alveg og henti kveikjaranum eitthvert….strákurinn(segjumbara Tommi) sagði henni að róa sig og hætta að vera svona pirruð…þá varð hún enn brjálæðarri og lamdi aðeins í hann, þá stóð hann upp og sagðist ætla að fara eitthvert því hann nennti ekki að vera þarna þegar hún væri í svona fýlu! Þá hljóp hún að útidyrahurðinni og stóð fyrir framan hana og öskraði á hann að hann færi ekki neitt, hann sagðist ætla að fara enn þá ýtti hún honum harkalega i burtu….hann reyndi að komast framhjá henni og þá fóru þau að slást(skoSLÁST) ég hljóp til þeirra og reyndi að stoppa þetta, Ég sá bara reiðina og geðveikina í augunum á Stínu, ég varð rosalega hrædd og hélt að hún myndi berja mig…..svo fór Stína inní stofu og tommi sagðist ætla aftur út þá byrjaði þetta aftur og í þetta skipti varð það alvarlegra…ég reyndi að komast aftur á milli þeirra fékk högg í mig frá Stínu og Tommi fór á HÁgráta! Ég öskraði á Stínu að drulla sér í burtu frá honum og hætta þessu! Stína öskraði bara á mig að hún þoldi okkur ekki og eitthver ómerkileg orð! Ég tók utan um Tomma og hann hágrét gjörsamlega(tvítugur maður) Hún horfði bara á hann og skellihló og öskraði helvítis grenjuskjóða þú ert bara aumingji!!! Svo fór hún inní stofu, Tommi hélt fast utan um mig og hvíslaði að mér“Ég er svo hræddur” og grét enn meira….ég sagði honum bara að fara til mömmu sinnar í nótt…hann sagðist þurfa að komast burt því honum liði svo illa!! Þá kom Stína og labbaði í áttina að Tomma og þá fór hann aftur að hágráta og sagði Ekki berja mig, plís ekki berja mig!! Stína sagðist ekki ætla að berja hann og reyndi að taka utan um hann…hún skipaði honum að taka utan um sig ég sá hendurnar á Tomma og hann skalf hevý mikið….ég var orðin svoo hrædd…:/
hann endurtók alltaf Ekki berja mig ekki berja mig! Svo sagðist ég ætla að fara þá sleppti Tommi sér og fór aftur að gráta og sagði “ekki fara ekki fara”….Þá varð stína aftur brjáluð og fór inní stofu….ég sagði Tomma að koma og setjast inní stofu og stakk upp á því að við færum út að fá okkur freskt loft…þau vildu það enn fyrst ætlaði Stína að tala við Tomma, þá varð ég aftur hrædd um að hún myndi berja hann aftur…enn þau voru ekki komin niður aftur eftir korter þannig ég fór upp að tjékka á þeim þá voru þau að kyssast…ég stóð í hurðinni og Tommi sagði mér að koma…tók svo í hendina á mér og sagði að honum þætti vænt um mig og að ég hafi bjargað sér áðan! svo fórum við útað labba og ég fór heim…Svo daginn eftir náði Tommi í mig enn Stína beið heima, ég spurði Tomma hvort þetta hafi skeð áður! Þá sagði hann 2 eða 3 sinnum!!! Hvað á ég að segja og gera?
Ég get ekki látið vinkonu mina komast upp með það að berja Tomma…. :(
Hann er skíthræddur við hana, ég sagði að ef hún gerði þetta einu sinni enn þá ætti hann að hætta með henni…því þetta samband væri ekki heilbrigt!!!!