Um daginn kom ég manninum mínum rækilega á óvart!!! Þegar hann kom inn þá voru kertaljós á ganginum og rósir sem vísuðu honum leiðina inn á bað, þar beið ég eftir honum í nýjum nærfötum, með uppáhalds hvítvínið okkar og í baðvatninu voru rósablöð. Það var yndislegt að sitja þarna í baðinu með fersk rósablöð allt í kringum okkur (lyktin var frábær!!) og drekka hvítvínið, stemmingin var alveg yndisleg. Maðurinn minn var ekkert smá undrandi en honum fannst þetta alveg jafn frábært og mér :)
Ég mæli eindregið með því að þið prufið þetta, þetta var bara alveg ólýsanlegt :)