Þetta er þannig að ég byrjaði með þessum strák í 3.bekk (sem þýðir auðvitað að við vorum bara vinir en við vildum vera kærustupar!) og vorum saman alveg þangað til í 6. bekk en þá fórum við í fyrsta skiptið að kyssast og eitthvað.

En svo hættum við saman þegar hann fór í annan skóla og hann var samt ennþá hrifinn af mér og ég af honum. Svo byrjuðum við saman aftur í 7.bekk en við hittumst ekkert mikið svo að ég hætti með honum.

Núna hatar hann mig af því að ég hef átt tvo kærasta síðan við hættum saman og hann segir að þeir séu algjörir mongolitar og algjörir lúðar og eitthvað þótt hann þekkir þá ekki neitt, veit ekki einu sinni hvað þeir heita. Hann hatar mig sérstaklega af öfundsýki og á msn byrjum við að spjalla bara venjulega sona “hvað ertu að gera” og slíkt en svo endar það alltaf með að við rífumst og allt fer alveg í rugl. Eins og t.d. þegar nickname-ið mitt á msn var: *Vertu Fallegur Í Friði" þá kom hann strax eitthvað: HVER ER SVONA FALLEGUR? ég setti mynd af strák sem ég er brjáluð í, í Display ramman og þá byrjaði hann: OJJ marr! Þetta er algjör mongoliti! ojj barasta!
Og þá auðvitað svara ég honum eins leiðinlega og ég get og við förum að rífast eins og tvö gömul hjón en auðvitað er ekkert að marka msn.

Við mundum aldrei þora að rífast svona í alvöru en eins og ég var á balli fyrir nokkrum vikum og þá sat hann, og horfði ógeðslega á mig og þóttist vera að kúgast og gubba en ég tók það ekkert nærri mér (sem er ömurlega barnalegt). En ég veit að hann er hrifinn af mér en þetta er bara öfundsýki.

Ég trúi því varla að ég sé að fara að segja þetta núna en mér finnst eins og mér þykir ennþá rosalega vænt um hann því við vorum svo lengi saman eða mjög góðir vinir þegar við vorum bra smákrakkar og við kysstumst og ég var oft ein með honum á kvöldin að passa litla bróðir hans og við keyptum alltaf fullt af nammi og horfðum á mynd og kúrðum saman.

En ég vil ekki vera ósátt við hann eins og ég er í dag. En hvað get ég gert til að við verðum sátt og vinir aftur?
(það er ekki hægt að segja mér að tala við hann því það er ekki hægt því að hann byrjar strax að röfla og honum er nákvæmlega sama)

En plz ekki svara með neinum skítaköstum.
Takk ;)