Úffff…! sko, þetta er alger steipa!

Það koma við þessa sögu 2 strákar, X og Y oki… fyrir rúmum einum og hálfum mánuði eða ekki gott sem tvem bara. Þá var ég á Busaballi, það vill svo til að X er rosalega hrifinn af mér, og var það á busaballinu líka, en….. Ég sá hann bara sem vin, svo að ég var að dansa við fullt af strákum, síðan seint um nóttina, þá sé ég Y og við förum að tala saman.
Og til að stytta þetta þá enduðum ég og Y upp í hvort öðru. Og eiginlega fyrir framan X, og Y og X eru mjög góðir vinir.
Og X er góður strákur og var ekkert að skemma fyrir Y. Svo eftir ballið þá töluðum við ekki saman í einar tvær eða þrjár vikur, en ég og X vorum alltaf jafngóðir vinir, og erum það enn sko. Mér þykir mjög gaman og þægilegt að vera með X. Mér líður vel í kringum hann. En svo fórum við út saman öll, nokkrir (MARGIR) krakkar úr skólanum í svona óvissuferð, það var mjög gaman í henni, en þar fór ég að tala við Y aftur og við töluðum alveg heillengi saman um það sem gerðist á busaballlinu og ýmislegt.

Svo fóru allir í sund, og við líka ég X og Y, svo var Y alltaf að koma nær mer og gera eikkað við mig, og svo var ég eiginlega komin í fangið á honum bara sko (Við vorum öll búin að drekka dáldið, bæði á busaballinu og í þessari ferð), og X sá alveg hvert þetta stefndi, og fór bara, (Hann var sko enn hrifinn af mér þarna og er það enn) og það fór alveg eins og hann hélt, við vorum í tvo tíma í sundi að snogga, og sona.
Svo vorum við saman um nóttina, og ég sofnaði og sona, so um morguninn vorum við orðnir vinir, og núna erum við farin að tala saman, en ekki hundsa hvort annað og láta eins og annaðhvort okkar sé ekki til.
En svo er ég búin að vera í miklum hugarangri lately, því að ég sagði alltaf að ég væri ekki hrifinn af X heldur bara vinir, og vinkonur mínar sögðu mér að ég væri það, en ég væri bara i afneitun. Ég vildi ekki hlusta á það, svo í síðustu viku fattaði ég það bara sjálf, kommon ég er hrifin af gaurnum, é fattaði það nú bara þegar ég vissi það að ég vildi ekki að hann væri með annari stelpu, heldur bara mig. Mér þykir rosalega, og hefur alltaf þótt rosalega vænt um hann, fæ alltaf svona kipp í hjartað og hugsa sona sætt til hans fattiði.
Svo í gær þá kyssti ég hann alvöru kossi áður en ég fór heim, hann bjóst ekki við því, en var rosalega ánægður eftir það.
En svo seinna um nóttina er hann farinn að slefa upp í aðra stelpu!!!!! Sem er vinkona mín! Ég bleima henni ekki neitt eða honum, bara ég er svoldið sár núna þegar ég veit að ég er hrifin af honum.!!! En samt hann gat einla ekkert vitað.. En hefði samt áttað gera það því að ég farin að gera fleiri hluti við hann sem ég gerði ekki, eins og þessi tungukoss. Ég kyssi ekki stráka bless með tungukossi heldur ef ég vil eikkað meira, ég var edrú en ekki full þannig…

Veit ekkert hvað ég á að gera, gleyma honum og vera bara vinkona hans eða gera eitthvað í þessu!?
Ohh þetta er svo mikil flétta!!!
Þegar þið svarið ekki vera of dómhörð, það er ekki það sem ég þarf á að halda, en þið megið dæma smá.

Kv. MioneH