Ok ég á í svo miklum erfiðleikum alltaf og ég veit ekkert hvað ég á að gera!! Þannig er mál með vexti að ég var með gaur sem er alveg hægt að kalla bara X. Við vorum góðir vinir í marga mánuði áður en við byrjuðum saman. Ég var samt búin að vera mjög hrifin af honum gegt lengi áður en við létum slag standa og byrjuðum saman. Við vorum saman í nokkrar vikur en svo fékk ég allt í einu svo mikið ógeð á honum að ég hætti að vilja hitta hann og við hættum saman þannig. En meðan við vorum enn saman var ég eitthvað að knúsa og kyssa besta vin minn sem kallast bara R og var þá með bestu vinkonu minni(D). E frétti af því þegar ég var hætt með honum og varð mjög fúll og ætlaði að berja R. Sem betur fer varð ekkert úr því. En svo var D að segja mér að hún hefði haldið fram hjá R með X. Ég varð solldið sár, afþví þetta var náttla besti vinur minn sem hún var að halda fram hjá, og ég vildi ekki að hún myndi særa hann, og líka að þetta var með fyrrverandi kærasta mínum.
Stuttu eftir það hætti D með R. Síðan hitti ég nýjan gaur(T). Við vorum bara að leika okkur nokkrum sinnum, bara líkamlegt eiginlega þó að auðvitað væru tilfinningar líka. En svo sagði hann að hann vildi að við byrjuðum saman, hann væri svo hrifinn af mér. Ég vildi það ekki, vildi bara að við gætum verið vinir. Við ákváðum að það væri bara best. En svo fattaði ég að ég var gegt hrifin af honum og ætlaði að segja honum það en þá var hann víst kominn með aðra upp á arminn, góða vinkonu mína(W). Og núna er ég alltaf að deyja úr afbrýðissemi þegar ég sé T og W saman! En ég er samt svo viss um að ef ég myndi vera með T þá myndi ég fá leið á honum svo fljótt!! Og síðan er ég aftur orðin hrifin af X. Og ég held að ég sé hrifin af R! Og stundum finnst mér eins og ég sé geðveikt hrifin af W, samt held ég að ég sé ekki lesbía! Ég veit að þetta er örugglega mjög óskiljanleganlegt og ég er bara að skrifa þetta í einhverju kasti og þetta er fyrsta greinin mín hérna á Huga og ég veit ekkert hvernig þetta kemur út.

Haldið þið að það sé einhver tilgangur í að vera að standa í að reyna við þessa krakka? ég veit ekkert hvað ég á að gera og ég held að ég sé að brjálast. HJÁLP!