Ég er í mjög órómantísku sambandi og ég er svosem alveg sátt við það. En ég þekki stelpur sem hætta bara með strákunum ef þeir eru ekki alltaf að nudda þær gefa þeim rósir, bjóða þeim út að borða og svoleiðis en gera svo ekkert á móti sjálfar! Mér finnst það bara halló! Sumir virðast halda að karlar eigi bara að vera rómantískir við konuna sína en hún má bara vera bitch á móti, það er a.m.k. mín reynsla, ég hef sjálf mjög gaman af að kaupa krútt bangsa eða rós handa elskunni minni, alveg sama þótt ég fái ekkert á móti nema bros koss og takk :) Ef þú vilt að konan/karlinn þín/þinn verði rómó við þig, prófaðu þá að vera rómó fyrst og sjáðu hvort þú græðir ekki eitthvað á því! :)
Just ask yourself: WWCD!