Vá ég er alveg að verða brjáluð! Ég er svo rugluð :S Skomm…það er þannig að nýlega kynntist ég þessum strák. Við skulum bara kalla hann X.

Allavega, ég hafði verið að tala við X eitthvað pínu á þessu undratæki msn. Svo hittumst við og urðum bara að ég hélt mjög góðir vinir. Þegar ég og besta vinkona mín, köllum hana Y, vorum heima hjá X lágum við kannski öll 3 uppí rúmi að horfa á TV eða eitthvað þannig og þá hélt hann utan um mig og hann var bara svo góður. Alltaf að knúsa mig og þannig. Svo spurði Y hann hvort hann væri hrifinn af mér og hann sagðist vera hrifinn af mér og ég var bara í skýjunum sko…ég orðin hérna ýkt hrifin og hann var það þá líka. Svo spurði ég hann hvort þetta væri satt og þá svaraði hann því játandi og ég hélt bara að allt væri frábært. Okey…ég bý útá landi, og svo fer ég þarna í nokkra daga í höfuðstaðinn. Ég hitti X og er hjá honum í einkura stund og svo kveðjumst við. Þá var eg þeirra skoðunar að hlutirnir gætu ekki verið betri. En allavega…ég sendi honum sms og hringi en hann svarar ekki. Ég hugsa bara þessa tíbísku hugsun “aha, hann á ekki inneign” en allavega…svo fer hann að byrja að skella á… þá var ég bara “WHAT???” en jamm…held ég þá von þetta sé einhver misskilningur.
Svo er það þannig ég er heima hjá einni bestu vinkonu minni þarna í Reykjavíkinni, og fæ að nota heimasímann þar til að hringja í hann því ég var orðin mjög sár og leið yfir þessu. Að hann skellti alltaf á mig. Þá svarar hann! Á einu secúndubroti varð ég himinlifandi. En það varði ekki lengi :'( Samtal okkar var orðrétt svona:
“Hæ…” -X
“Hæjjjj” - Ég
“Hver er þetta?” -X
“ég sagði nafnið mitt” - Ég

Þá skellti hann á.

Ég sat við símann og skildi ekki neitt. Ég skil ekki neitt enn. Þegar ég reyni að hringja, hann skellir á, sendi sms, hann svarar ekki. Ég gerði tilraun, addaði honum á msn sem ég hef fyrir bestu vini mína…hann blockaði mig um leið og hann las nafnið mitt. Ég efa hann hafi lesið afganginn þar sem ég bað hann um að útskýra afhverju hann gerir mér þetta. Hann skellir á bestu vinkonu mína. Sem síðast þegar ég vissi átti að teljast til ágætist vinkonu hans…

Ég er alveg ráðalaus :| Er einhver hérna sem hefur lent í þessu? Eða svipuðu ? Einvher sem hefur einhvera hugmynd um afhverju hann gæti látið svona ? :'( Ég er alveg ráðalaus!!!