Til hvers að vera rómó?
Af hverju ekki bara segja, “koddu að ríða” eða: Eigum við að gera það?
Fólk, bæði stelpur og strákar velta þessu atriði kannski fyrir sér annað slagið. Að minnsta kosti geri ég það. Hversu oft hefur stelpa eða strákur lent í því að þetta hafi verið sagt? Þó nokkrum sinnum myndi ég halda. Mitt álit á þessu er að það ætti að banna svona setningar!
Mér finnst þær vera lítilsvirðandi jafnt fyrir kk og kvk. Þetta er svo mikið Turn Off! ÞAð á að fara fínt í hlutina, svona gera þá ekki jafn augljósa, það er í lagi að vilja fá sér smá á broddinn en fara frekar fínt í það. Það er bara svo góð tilfinning að finna fyrir rómantík í loftinu.
Ég er ekki bara að tala um að gera þetta ef þið eruð í samböndum heldur einnig fyrir þá sem eru fyrir “one night stand”.
En hvað finnst ykkur? Ætti að vera rómantík eða bara þessar venjulegu Turn Off setningar?

Bugs