Ég er ekki viss um að þetta tengist rómantík, en ég læt bara vaða!! Ég á semsagt kærasta og við erum búin að vera saman í tvo og hálfan mánuð og allt gengur vel. Síðan núna um helgina fór hann á strippstað og fékk sér einkadans. Hann sagði mér það og mér fannst það ekkert tiltökumál, ég var ekkert fúl. Svo eru allir búnir að frétta af þessu og langflestir, allavega allar stelpurnar voru svo hneykslaðar að ég væri ekki brjáluð út í hann!! Ég meina, ef ég vildi fara á svona stað mundi ég ekki fíla að hann bannaði mér það.
Hvað finnst ykkur??