Vinkona mín gaf mér leifi til að skrifa þessa grein en hún vildi fá mig til að skrifa hana fyrir sig.

Jæja, hún á kærasta sem á heima í öðrum heimabæ sem er svolítið langt í burtu. Þau kinntust á fótboltamóti og eru búin að vera saman í smá tíma.
Þau hafa aldrei almennilega hisst nema einu sinni þegar hann kom í bæinn sem hún á heima í. Ekkert vandamál þá.

En allt í einu er hann byrjaður að vera með rosalega mikla stæla og leiðinlegur bæði við hana og vini hennar. Sérstaklega þegar hann er með vini sínum.
Honum finnst samband þeirra vera svo ógeðslega mikið leyndarmál að hann vill varla vita það sjálfur.Hann hefur svo miklar áhyggjur af því að einhverjir vinir sínir fatta að þau séu saman.
Vinkonu minni líður ekkert svo vel útaf þessu svakalegu leyndarmáli og svo gerðist það að kærastinn hennar gleymdi símanum sínum hjá vini hans og vinur hans byrjaði að skoða sms-in hans og þau voru auðvitað frá vinkonu minni. Vinur hans fattaði að þau væru saman og spurði hann útí þetta. Þegar vinkona mín kom á MSN fór vinur kærastans hennar að segja kærastanum að vinkona mín hefði sagt honum frá þessu.(Sem kærastinn var ekkert of hress með því hann vildi halda sambandinu leyndu)
Vinur hans hefur gert þetta áður að ljúga uppá hana og þá verður kærastinn hennar ekkert svo ánægður með það og byrjar að spurja hana svo kvikindislega út í málið. Það er alveg eins og þessi vinur kærastans hennar sé ekkert að höndla það að leifa honum að vera með henni. Hann er örugglega svo afbriðissamur að hann leifir honum ekki að eiga kærustu því hann á enga.

Vinkona mín og kærastinn hennar eru núna að fara að hittast bráðum en hún veltir því fyrir sér hvernig hann mun láta. Það er alveg eins og hann skammist sín fyrir hana og auðvitað vill vinkona mín ekki standa í því.
Hann vill halda sambandinu leyndu fyrir foreldrum sínum en auðvitað mundi hann aldrei geta komist til hennar ef þau vita ekki af hverju hann vill fara. Þetta veldur vinkonu minni miklum áhyggjum en hann er svo umhyggjusamur og góður við hana þegar hann er einn. Hann kaupir bara inneign til að eyða í hana og allt svo að vinkona mín vill ekki missa hann.

Hvað finnst ykkur að hún ætti að gera? Ekki koma með nein skítaköst..bara góð álit.
Takk fyrir.

Pantalæmon hefur tjáð sig. Lifið heil!
The road is my slave, that's how I feel