Halló ÉG ÞARF HJÁLP, sko mér finnst þetta fáránlegt hvernig ég læt með þetta… En ég verð bara að skrifa og fá álit, ég er búin að fá álit frá tvem vinkonum, og bæði voru svipuð.. En… ég skrifa samt um þetta:

Í Sumar fór ég á ball úti á landi, og fólkið sem ég umgengst það er alltaf að stríða mér á strákum (ég er bara að verða 16)eins og svona: Ú þessi strákur.. daddara, og ætlaru að reyna við þennan strák… og eitthvað fleira í þessum dúr.

Og svo þetta kvöld þegar við vorum að fara á ballið, þá voru þau alltaf að segja mér að það væru fullt af strákum sem ég gæti reynt við. Og ég var alveg bara, nei það verða ábyggilega engir sætir strákar þarna.
Svo fór ég á þetta ball, og það var geðveikt gaman, og þar hitti ég gamla vini mína, og einn sem ég er ekki búin að tala við alveg bara heillengi, og svo kemur þessi æðislega sæti strákur. Dökkhærður, frekar svona dökkur á hörund, dökk augu. (Ég er veik fyrir dökkhærðum strákum) hann er alveg æði, ég sagði við sjálfa mig að ég ætlaði sko ekki að falla fyrir honum.
En það sem varð til þess að ég kynntist honum var það að ég stóð við hliðina a´vini mínum og var að tala við hann og vin hans, og þá kemur X (best að segja engin nöfn) og tekur um herðarnar á mér og Y (Vinur minn sem ég stóð hjá, og sá sem ég hafði ekki hitt lengi) og spurði hvað við segðum gott, þá sneri y sér við og kinnti mig og X. og um leið og ég leit framan í hann þá bara hoppaði í mér hjartað, ég horfði í augun á honum, og þau eru eitt það fallegasta sem ég hef séð!!!
Við vorum kynnt, og eftir það þá var svona meira augnasamband á milli okkar, hann labbaði kannski framhjá mér og horfði í augun á mér, ég var að dansa hann horfði á mig renndi augunum svona yfir mig, og leit svo í augun á mér.

Síðan var ég úti að tala við eitthvað fólk, Y kom og talaði líka við mig, svo varð mér allt í einu svo kallt það var bara eins og ég væri komin á norðurpólinn, og fékk lánaða úlpuna hjá y, svo héldu sumir að ég væri hrifin af y af því að ég var í úlpunni hans, og eikkað bull en ég leiðrétti það nú. Svo þegar ég ætlaði að skila úlpunni hans. Þá var X og Y að spjalla við lögguna og ég vissi ekki að þetta væry X þarna líka, og tók svona utan um x og y, og skilaði svo úlpunni, ég hugsaði svona ´úps´.
En hvað um það, Svo fór ég inn aftur, dansaði nokkur lög, ég var með fullt af fólki að dasna, og svo sneri ég mér við og þá var X að horfa á mig, ég leit í augun á honum, og hann brosti til mín. Ég vissi ekki hvað ég átti að gera, en ég brosti bara á móti sneri mér við og hélt áfram að dansa.

Svona var þetta allt ballið, augu okkar dönsuðu saman skiljiði, og hann er með svo falleg augu, ekki bara augu heldur han er bara fgallegur, gaman að tala við han og svona.
Svo kom að síðasta laginu og það var rólegt, og þá ætlaði pabbi minn að dansa við mig, og ég sagði bara nei!!! (Ég held samt að hann hafi ekki áttað sig á því að þetta væri rólegt lag, hann var nokkuð mikið drukkinn)
En allavega, þá dansaði ég þennan síðasta dans við X!!! Og hann hélt svo þétt utan um mig, ég var svo nálægt honum að ég gat ekki einu sinni hugsað! En svo þegar lagið var búið þá var ég dregin út án þess að geta sagt neitt við hann, ég var búin að snúa mér að honum en þá var ég dregin út og upp í bíl, og ég var bara a´leiðinni heim! Fáránlega leiðinlegt!

Næsta dag mundi ég bara eftir augunum á honum, og brosinu, en ég dró svo oft upp myndina þar sem hann sat og brosti til mín með hendurnar í vasanum, og þegar hann labbaði framhjá mér og tók ekki augun af mérfyrr en hann gat ekki lengur snúið þeim.

En svo fór ég heim yfir eina helgi (Ég vann úti á landi) Og kom svo aftur, gysti í heimabæ hans í 2 daga, en hann vissi ekki af mér þarna fyrr en daginn sem ég fór, og þá hitti ég hann í vinnunni, og þá var hann að fara að ganga frá dóti, og gekk framhjá mér og horfði bara í augun á mér, en ég leit undan því ég var með svo mikinn hjartslátt, svo stóð hann ekki svo langt frá mér og var alltaf a' líta á mig. sömuleiðis ég. En síðan fór ég.

Svo var vinur pabba míns á fylleríi og sagði mér að passa mig á honum, að hann væri svona strákur sem færi illa með stelpur,að hann vissi það því hann hafði líka verið svona, svo spurði ég vin minn sem býr í sama bæ og hann og hann sagði að hann væri svoleiðis strákur, og ætti kærustu úti á landi sem hann væri búinn að halda 100X framhjá á árinu!! SAgði að hann væri alger kvennabósi og vandamála strákur alveg eins og pabbi sinn!

EN svo spurði ég vinkonur mínar hvað ég ætti að gera og sagði þeim hvernig allt stæði, og hin önnur þeirra sagði að ég ætti að reyna við hann ef ég væri í alvöru hrifin af honum, og hin sem hefur reynslu af svona vandamálastrákum, hún gat ekki sagt mér að láta hann í fryði því hún þekkti þetta, og það var búið að segja henni að strákurinn sem hún lenti á væri svona strákur, og hún vildi frekar brenna sig á honum enb láta ekkert ske.
Ég veit á X á kærustu sem hann erbúinn að halda framhjá 100X. En samt var fyrri vinkona mín að segja mér að vera vonda nornin og gera eitthvað í því afþví að ég þekkti ekki kærustuna hans, en ég veit samt hvað hún heitir.

En ég veit ekki ég myndi ekki vilja að kærastinn minn héldi sífellt framhjá mér.

Og ég veit ekki hvað honum finnst um mig.

Hvað á ég að gera, ég er ekki í Gsm síma sambandi yfir sumarið, það hefði breitt eitthverju kannski ef ég væri það, en ég er það ekki.

Getið þið sagt mér hvað í ósköpunum ég á að gera, í hvert sinn sem ég sé dökkhærða stráka þá verur me´r hugsað til X, ég veit ekki hvaða tilfinning það er sem er að brjótast um í mér, en það er einhver, ég meina ég var að horfa a´sjónvarpsþáttáðan og þar var dökkhærður strákur, og mér varð strax hugsað til X, hann lítist honum svo!!!

Hvað á ég að gera ég er í algerri kringlumýri!!!

Gerið það segið me´r ykkar álit… Ekki vera svín samt..
Kv. MioneH