Í gærkvöldi var stór árshátíð hérna á Akureyri sem að VMA hélt í Íþróttahöllinni.

Þetta var fjölmenn árshátíð og mikið af víni og fólki þar í bland. Ég hins vegar var í partýi og vildi ekki vera að eyða tíma, og peningum (sem ég á MJÖG takmarkað af) í ball með Landi & Sonum sem eru ekki beint í uppáhaldi hjá mér, þótt þeir séu sjálfsagt ágætir á sýnu sviði.

Kærastan mín fór hinsvegar á þetta, í fullri sátt um að ég færi ekki, en við höfum verið sundur og saman frá því í nóvember á síðasta ári. Ástæðurnar eru afar fáranlegar sumar hverjar en frá mér þá er það aðallega að þegar hún drekkur, þá drekkur hún mikið og gerir hluti sem hún man ekki (eða segist ekki) muna eftir.

Í nótt þegar ég var farinn að sofa þá hringdi hún í mig, piss full og spurði hvort ég vildi sækja hana þar sem hún var en ég gat það ekki vegna þess að ég var búinn að drekka. Þá fór hún að tala um hvernig kvöldið var og var að segja mér frá hinu og þessu, aðallega þó hvað nánast allir strákar sem að hún hitti og talaði við, kysstu hana eða voru að káfa á henni. Þetta fór nú heldur í mig, en ég veit ekki hvað ykkur finnst en mér fannst hún taka heldur nett í þetta eins og þetta væri sjálfsagður hlutur, sem að mér finnst alls ekki.

Síðan um morguninn þegar ég vaknaði þá var það fyrsta sem ég gerði var að hringja í hana og spyrja hvernig henni líði og þar fram eftir götum. Svo kom það á tal að ég spurði hvort hún hefði gist heima hjá sér. Þá kom það í ljós að hún hafði “gist” hjá bróðir vinkonu sinnar (uppí rúmi hjá honum), sem er 19 ára, árinu eldri en ég, en þau voru búinn að vera að dúlla sér eitthvað í þessum “pásum” sem að við tókum okkur. Hún sagði að hún hefði bara sofið uppí rúmi hjá honum og ekkert meira. En málið er að kærasta besta vinar míns var í partýi hjá henni einhverntíman í febrúar, og sagðist hafa komið inná hana, og einn “vin” minn, í sjóðheitum fílíng í rúminu hjá pabba hennar og mömmu, í “pásu” sem að við vorum í. Annað sagði hún um það og saðgi að ekkert hafði gerst þar.

Ég veit ekki hvort hún sé að ljúga þessu öllu að mér en ég sé ekki hvað kærasta vinar míns ætti að hafa uppúr því að ljúga því að mér.

Svo kemur oft sú afsökun að hún hafi verið full og hafi ekki vitað hvað hún var að gera.
Málið er að ef að hún drekkur svo mikið í hvert sinn sem hún fer á fyllerí að hún man ekki neitt sem hún gerir, held ég að hún eigi við drykkjuvandamál að stríða, en ég þori ekki að segja neitt um það, í óttum um að hún taki því illa.

Síðast þegar ég heyrði í henni þá kvöddumst við í tárum og ósætti og hef ég ekkert heyrt frá henni í allan dag.

Ég er alveg ráðalaus… Veit einhver hvað ég get gert?

-mystic-
nossinyer // caid