ég hef gífurlegan áhuga á strákum og hef laungum stundum gjört, þó svo að ég sé nú bara sextán vetra gömul!

Ég er týpan í að falla fyrir 10 manns í einu og vera hryfin af 20 á sama tíma en samt tekst mér að haldast í sambandi í heilt ár af einhverjum óútskýranlegum orsökum! En hef aldrei virkilega trúað á það að ég sé neitt sérstök svo þegar ég heyri að ég er falleg þá alveg bráðna hnén mín eða bara hvaða hrós sem er þess vegna er auðvelt að láta mig falla fyrir þér :Þ ;D en ef þú segir eitthvað svona við þann sem þú ert hryfinn af eða bara einhvern sem þér finnst sæt/sætur þá ertu að gera góða hluti og Karmað þitt hækkar (þó svo að þú sért ekki búddah trúar :Þ). Það að hrósa næsta manni fyrir flottar buxur eða hvað sem er er málið!

ég er að skrifa þetta því að það er svo mikið af korka greinum sem fjalla um það sama! hvernig týpur heilla?

Þegar karlmenn eldast er það bara eðlishvöt að velja sér konu sem er með tímaglass lögun (stór mitti~stór brjóst) því sú týpa á auðveldara með að eignast og ala börn. Þeir velja konur sem minna á mæður sínar.

Kvenmenn velja sér karlmann alveg óhátt útliti (upp til hópa) sem er hæfur til að veita henni öryggi þegar hún fer að eldast, hún vill vita að hann verður ávalt til staðar og velur sér karlmann sem minnir hana í undirmeðvitundinni á föður sinn (eins og karlarnir með mæður sínar ).

En á meðan það er ekki verið að leita að framtíðar maka er bara spurning að vera sjálfum sér samkvæmur og ekki blóta sér í hljóði fyrir að vera með asnalega lagaðan ökkla (bara dæmi) heldur horfa frekar framhjá því og rækta það sem er gott og flott við ykkur…. Ég veit að allir hafa heyrt þessa sýru áður og þetta er komið útí það að þú færð ekki koss nema að þú borðir smint pakka á dag og stundir Yoga tvisvar í viku :Þ en það er ekki málið sjálfstraust er málið!

Það er sexy að manneskja getur labbað uppað þér og sagt góðan daginn og þú svarar í sömu mynt þó að samræðurnar verði ekki lengri þá er mórallinn þinn yfir daginn eða vikuna allt annar!
Have a nice day