Mig vantar ráð hjá ykkur elsku hugabúar. Hvernig hættir maður að elska einhvern sem mun aldrei elska mann til baka?
Ég hef verið hrifin af besta vini mínum í u.þ.b 6 mánuði en get ekki sagt honum það vegna þess að ég veit að hann á aldrei eftir að elska mig til baka. Núna er hann farinn að hitta alveg æðislega stelpu… þá meina ég æðislega!!! Og það er einhver neisti á milli þeirra. Afbrýðisemin er að ganga frá mér, stundum get ég varla andað þegar ég hugsa um þetta. Ég veit að það er sick að hugsa svona en ég get ekki hætt.
Hvað geri ég til að hætta að elska hann? Hvernig kemst ég yfir hann? Mig langar ekki að vera ennþá hrifin af honum þegar hann byrjar með gellunni…það væri bara alltof mikið fyrir mig að höndla.

Plís svarið mér ef að þið getið.