Allt í lagi þá ég sá það að fólk var frekar ósammála mér í síðustu grein minni en common! Ég hef ekki upplifað mikið af því að fólk segi við mig að ég sé of góður fyrir þær! Það er mikill miskilningur! En málið er að ég hef séð mikið af þessu gerast og þetta er já oft afsökun fyrir því að hún vilji hann ekki en stelpur hvar er þá virðingin hjá ykkur að geta sagt honum þetta með hreinskilni? Og ekki koma með þetta að þið viljið ekki særa manneskjuna! Ég myndi frekar vilja hreinskilið svar frá henni í staðinn fyrir að frétta það kannski seinna! Og eitt líka þá sagði ég að strákar og stelpur héldu framhjá! Ekki bara stelpur og ekki miskilja mig en ég veit um nokkur tilfelli sem vinir mínir halda framhjá og vinkonur líka!

Allt í lagi vinur minn stundaði að halda framhjá það er ég ekki sáttur við en það eru líka vinkonur mínar sem hafa margar stundað það að halda framhjá! En málið er að ef það yrði tekin könnun hér á Íslandi þá er ég pottþéttur að kvennfólk væri með hærri tölu í framhjáhaldi! En það þýðir ekki að strákar haldi ekki framhjá þeir gera það alveg eins og stelpurnar enn ég tel það auðveldara fyrir stelpurnar því þær eiga yfirleitt auðveldara með að fá stráka enn strákar að fá stelpur!

Ég var með stelpu í 1 og 1/2 ár og gekk það ágætlega þar til ég fór að frétta það af vinum mínum að hún hefði haldið framhjá mér! Ég trúði því ekki fyrst en það var besti vinur minn sem sagði mér það! 3 mánuðum eftir að ég frétti það ég spurði han út í þetta enn hún neitaði! Ég trúði henni frekar enn besta vini mínum! Ég var tilbúin að fyrirgefa henni þetta! Ég hætti með henni fyrir rúmu ári síðan það var ekki liðinn mánuður þar til hún svaf hjá öðrum strák sem ég þekki! Hún fór út til útlanda eftir að við hættum saman! hún kom heim til Íslands í sumarfríinu sínu viku áður enn ég kom heim (ég var í útlöndum í 2 vikur) ok svo hitti ég hana og ég svaf hjá henni. Vinur minn var búinn að segja mér að vinurminn hafi verið eitthvað með henni inni í herbergi og hann vissi ekki hvort eitthvað hefði gerst En hún var með strák úti á meðan þessu stóð! Ég var að fá að vit að hún hefði sofið hjá honum þetta umrædda kvöld! Ég spurði hana hvort að eitthvað hefði gerst milli hans og hennar! Hún sagði NEI! Þá þegar ég frétti að hún hefði sofið hjá vini mínum þá fór ég að hugsa ef hún hefði ekki getað sagt mér að eitthvað hefði gerst milli þeirra þarna getur hún þá ekki verið að ljúga því að hún hefði ekki haldið framhjá mér meðan við vorum saman? Maður veit aldrei alla vega veit ég það að ég mun ekki byrja með þeirri stelpu aftur!

Ég vill bara biðjast allra sem voru eitthvað móðgaðir af minni síðustu grein afsökunar og myndi gjarna vilja heyra í einhverjum sem er sammála mér í öllu þessu!

Takk fyrir

Ray Franco