Hmm…. Ég hef verið að velta því fyrir mér um tíma… Hvort ég sé það eða ekki… Hvort, hvort, hvort. Ég sé ástfangin?
Meina… Í langan tíma hefur mig langað til þess að verða ástfangin, það er að segja í heila 5 mánuði…
Ég er ekki lengur viss, en ég hélt einu sinni að ég hafi orðið ástfangin ekkað 3 sinnum eða ekkað álíka. En meina svo segir fólk sem hefur orðið ástfangið mér það að maður VEIT það þegar maður er ástfangin…
En ég meina.. Er virkilega hægt að vera hrifin af einhverjum í heil 3 ár án þess að vera ástfangin af manneskjunni?
Það eru mörg ár síðan að ég var hrifin af þessari manneskju… og þá var ég alveg handviss um að ég væri ástfangin.
En hvernig veit maður það fyrir vissu að maður sé ástfanginn???
Sko ég er barasta orðin svo rugluð á þessu að, ég er farin að spurja fólk hvernig maður veit það… og maður á að vita það sjálfur…
Okey.. núnna… er ég ekkert smá hrifin af einni manneskju. Og þessar tilfinningar hafa bara aukist seinustu mánuðina.
Og eftir því sem lengra líður fer ég að pæla í því hvort ég sé ástfangin af þessari manneskju eða ekki.
Meina af því ég get ekki hætt að hugsa um manneskjuna, þegar ég hugsa um hana þá barasta verður mér alveg heavý heitt og bara kafna úr hita, roðna barasta gegt mikið og líður gegt vel. Ég má ekki hugsa um það að hringja í þessa manneskju af því þá verð ég gegt taugaveikluð og bara hjartað sko alveg búmm, búmm, búmm.. hehe…
En ég meina, ég hef tvisvar áður orðið hrifin svona áður en náttúrulega ekki af sömu manneskjuni og þá var ég búin að gegt lengi hrifin af viðkomandi þegar ég fór að velta fyrir mér hvort ég væri ástfangin af viðkomandi.
Ég komst aldrei að þeim rétta sannleika, sem sagt hvort ég væri það eða ekki.
En núnna þá er ég bara búin að vera hrifin af þessari manneskju í 4 mánuði, 3 vikur og tvo daga. Og ég er strax farin að velta fyrir mér hvort ég sé ástfangin…
Og það er eitt enn… ég tók eftir því að ég hvert skiptið sem ég varð það mikið hrifin af einhverjum, þá fór ég að hlusta á disco tónlist, tónlist sem ég hlusta bara á þegar ég er í mjög góðu skapi, geðveikislega hrifin af einhverjum og bara líður rosalega vel.
Finnst ykkur það ekki solídið skrítið?…
Meina plís… hvernig get ég komist að því hvort ég sé ástfangin eða ekki?
Miss mistery