Hef lengi verið að velta því fyrir mér hvort það sé heppilegt að koma með þessa grein hingað inn, en fyrst meira en 80% af öllum þeim sem stunda þetta áhugamál telja sig nútíma útgáfu af Dr. Love ákvað ég að slá til. Þannig er nefnilega mál með vexti að minn besti vinur, sem heitir Helmut er hrifinn af stelpu. Þessi stelpa er víst ágætis skinn, soldið steikt á köflum en annars allt í lagi með hana. Hann byrjði að tala við hana fyrir sirka 2 vikum, eftir ball, þar sem þau voru bæði vel hífuð voru samræðurnar mjög fínar og alls ekki þvingaðar. Daginn eftir tekur hann af skarið og ákveður að hringja í hana, en því miður hringir hann aðeins og seint því hún er sofnuð en vaknar við símann, og man strax eftir honum en þar sem hann vill alls ekki trufla hana ákveður hann að það sé líklega betra að hringja á morgunn. Hann hringir svo í hana og allt gengur vel, fyrir utan það að hún er að koma af viðburði sem honum er alls ekki vel við, og hann lætur það að sjálfsögðu í ljós, því hann á það til að drulla yfir það sem honum mislíkar. En hann er alls ekki að drulla yfir hana, bara atburðinn sem hún var að sækja. Hún er með vinkonum sínum og þær eru á leiðinni í partý, en greinilega orðnar smá villtar og vinkonur hennar eru orðnar pirraðar á því að hún sé að tala í símann og þegar þær segja í fimmta skipti: “Æi, nenniru plís að hætta í8 símanum, ég er orðin virkilega pirruð á þér” þá setur hún sameiginlega vin þeirra í síman og eftir sirka 1 mín biður hún hann um að hringja seinna í kvöld, en þar sem hann er heimskur ákveður hann að sleppa því þar sem hann vill ekki vera heimskur. Daginn eftir reynir hann svo að hringja en hún svara ekki, eftir þetta hefur hann svo reynt að hringja 2 síðan í miðjum febrúar en hún svara bara ekki. Ég er orðinn svo dauðleiður á að hlusta á vælið í honum út af þessari stelpu að ég verð að fáað vita hvað stelpan er að hugsa! Hvernig geta stelpur útilokað gaura svona auðveldlega þegar þær þekkja hann ekki einu sinni almennilega? Og þegar að þær segja að þessir og þessir séu ekki alveg þeirra týpur, er þetta ekki bara löggild afsökun um að hann sé ljótur eða bara alls ekkert áhugaverður?!
Hvernig ættu Helmut vinur minn eiginlega að snúa sér í þessari sápuóperu? Þegar stelpur hafa myndað sér skoðun á mönnum án þess að þekkja þá er bara engin leið að snúa þeim, því ég er nokkuð viss um að hann myndi meika það, ef hún fengi að kynnast honum, hefur náð að snúa nokkrum karlmönnum, algjört hommagull.
En allavega, hvað er best fyrir hann að gera?