Hæ hæ…

Nú síðastliðinn 14.febrúar var Valentínusardagur. Erlendis er mikið tekið mark á honum og búðareigendur þar gera mikið úr deginum. Þetta gæti verið orðinn einn af uppáhaldsdögum elskenda en bara svona af forvitni að þá langar mig að vita hvað þið gerðuð fyrir elskuna og hvaða plön voru gerð fyrir Valentínusardag? Venjulega hefur bara verið farið út að borða á þessum degi hjá mér og mínum, bara til þess að taka þátt í honum til gamans :p og það var gert þetta ár líka. Sumir taka þessu hátíðlega og finnst gaman að gera eitthvað spes þótt tilefnið sé ekki neitt, en í rauninn er alltaf Valentínusardagur í lífi elskenda.

Langar bara að lesa eitthvað skemmtilegt og jákvætt sem pör hafa gert fyrir hvort annað. Þarf ekki einu sinni að tengjast Valentínusardag. Svo hvaða sögu hefur þú að segja okkur?

Kv. cutypie.
I´m crazy in the coconut!!! (",)