Halló allir/ar þarna úti sem eru rómantískir/ar

Þannig er nú statt hjá mér að maður er fjarri konuni sem ég er búinn að vera gifur við í 2 ár, og búinn að vera það í marga marga mánuði eða sem sagt 5. Við tölum saman mörgum sinnum á dag, daglega, oftast nokkuð lengi og símreikningurinn eftir því (þar sem konan er stödd í USA). Þetta ástand er nátturulega farið að vera frekar þeytandi og mig er farið vikilega að langa að komast heim til kellu. Hver veit nema að hún sé bara búinn að finna einhvern til að hita upp bólið!! Guð forði því!

Valentínusar dagurinn var að koma og hann er veru lega mikilvægur í hennar augum. Allt frá því að við kynntumst fyrst fyrir u.þ.b 4 árum hefur hún alltaf gert mikið úr deginum. Því miður hef ég ekki verið nógu góður við að virða þennn dag og því gert lítið úr honum. Ég var hreinlega ekki vanur svona sið.(þar sem ég er Ísl. karmaður og hún Latína frá USA) Ég fann alltaf fyrir vonbrygðunum hjá henni í hvert skipti sem maður var búinn að klúðra þessu. Sem betur fer þá er ég búinn að læra af mistökumum. Þannig að í ár varð minn maður bara að taka sig á og nota samböndin, og fá bestu vinkonu hennar til að redda mér með þetta allt saman. Þar sem maður er lang í burtu og með viljan að vopni þá er ýmissleg hægt að gera í dag á tækni öld. Maður hefði svo sem getað keypt e.h af netiu og sennt það, en mér fannst það ekki nógu persónulegt. Svo að ég fékk vinkonuna til þess að kaupa fullt að Rósum bleikum og rauðum, svaka flottar. Svo keypti hún fyrir mig risa stóra blöðru, hjartalaga, og svo bleikt míni pils og sexy topp í stíl. Konan tók náturulega mynd af öllu saman og sendi mér á netið, Nei því miður fáið þið ekki að sjá… Já vissulega reddaði ég deginum fyrir mig og hana, algjör lukka…

Það líður vonandi ekki á löngu þangað til að maður geti farið heim og kúrað hjá litlu Latinuni minni. Það eina sem ég get sagt er að þið skuluð ekki reyna þetta til lengdar, maður getur orðið allveg vittlaus á því að vera svona langt i burtu svona lengi.

Með fyrirfram þökk.

Pilot4u
Pilot4u