Eftir að hafa lesið þessi miður vel úthugsuðu skrif hjá Mindcity um rómantísku konurnar hreinlega varð ég að svara fyrir okkur karlmennina. Í fyrsta lagi…elskan mín, ekki vera að gera kvenfólk að einhverjum fórnarlömbum hérna. Við vitum öll að stelpur hafa alveg eins gaman af kynlífi og karlmenn og ég þekki margar stelpur sem ná meira að segja að hneyksla mig í barpikköppinu og er það ekki auðvelt!!
Málið er einfaldlega það að konur eru í raun ekkert skárri en karlmenn í þessum málum, þó þær fari stundum kannski fínna í hlutina.
Því segi ég…þó að þér finnist þú vera það kúguð af karlmönnum að þú sjáir þig tilneydda til að sofa hjá þeim til að friðþægja dýrslegum hvötum þeirra, ekki klína því yfir á allar kynsystur þínar því þær hafa flestar sjálfstæða hugsun og gera það sem þeim sýnist.

P.S. Maður segir “svara í sömu mynt” ekki í sömu mund. Það þýðir að svara í sömu hönd. Sorry, þetta fór bara virkilega í mig.