ÉG sé að þið eruð mörg að blanda útlendingum, kvennabaráttu og one-night-stand inn í þetta sem ég er ekki alveg sammála! Hvað er rómantík. Mér finnst það ekki endilega vera að kaupa rósir og elda fyrir konuna eða karlinn. T.d sagði Kate Moss einu sinni að það rómantískasta sem komið hefði fyrir hana var þegar þáverandi kærasti hennar Johnny Depp gaf henni hálsmen..en hann bar henni það alsber og geymdi það á milli rasskinnanna…!! Rómantík er einstaklingsbundin, það getur verið geðveik rómantík að fá vatnsglas þótt maður hafi ekki beðið um það.. sækja föt í hreinsun þegar allt er brjálað að gera hjá hinum…ég meina rómantík er ekki eins og Hollívúd framreiðir hana, þegar þannig rómantík kemur fyrir mig, verð ég hálf móðguð yfir ófrumleikanum!!!